Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ylja á Vagninum

22. júlí kl. 21:00

Upplýsingar um verð

Frítt

Söngfuglarnir úr Ylju, Bjartey og Gígja ætla að koma til okkar á Vagninn þann 22. júlí og fylla hjörtun okkar af ómþýðum söng og hugljúfum gítarleik eins og þeim einum er lagið. Dagskráin samanstendur af þeirra helstu lögum í bland við þjóðlögin sem þær hafa sveipað sínum einstaka „Ylju-blæ“ - ásamt því að henda í nokkrar af þeirra uppáhalds ábreiðum héðan og þaðan af.

Ylja var stofnuð af þeim Guðnýju Gígju Skjaldardóttur og Bjarteyju Sveinsdóttur árið 2008 og hefur hljómsveitin vakið verðskuldaða athygli tónlistarunnenda fyrir nýstárlega þjóðlagatónlist sína undanfarin ár og eiga nokkrar tilnefningar til íslensku Tónlistarverðlaunanna að baki. Báðar hafa þær m.a. verið tilnefndar til verðlauna sem söngkona ársins og eru þekktar fyrir draumkenndan gítarleik sem hljómar fallega undir blíðar raddirnar.

 

GPS punktar

N66° 2' 55.568" W23° 30' 49.178"

Staðsetning

Vagninn Flateyri