Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Urmull veitingastaða er að finna á Vestfjörðum í ýmsum verð- og gæðaflokkum og því af nógu að taka fyrir alla. Margir hverjir bjóða upp á rétti úr héraði, þar sem hráefni hefur verið sótt úr náttúru Vestfjarða. 

Hótel Djúpavík
Húsið sem nú er Hótel Djúpavík var byggt á 3ja áratug síðustu aldar fyrir konur sem unnu á söltunarplaninu við söltun síldar.  Þá kallaðist það Kvennabragginn. Það var síðan gert upp árið 1985 og það sumar komu síðan fyrstu gestirnir á hótelið. Við bjóðum upp á morgunverðarhlaðborð og kvöldmat í matsal sem er mjög sérstakur og fallegur. Kaffi og te eru frítt og brauð og kökur eru á boðstólum yfir daginn, ásamt léttum veitingum í hádeginu.
Logn, restaurant & bar
Logn, restaurant & bar er nýr veitingastaður sem staðsettur er á jarðhæð Hótels Ísafjarðar. Á Logni er hægt að gæða sér á girnilegum réttum af fjölbreyttum matseðli. Happy hour er alla daga milli 16:00 og 18:00 en einnig eru flottir Gindrykkir í boði og úrvals léttvín. Þægilegt "lounge" er við barinn þar sem hægt er að láta líða úr sér eftir annasamann ferðadag. 
Edinborg Bistró
Edinborg Bistró  er staðsett í Menningarmiðstöð Ísafjarðar í einu fallegasta og í árdaga þess, stærsta húsi bæjarins. Hvort sem þú vilt bragða á íslenskri matarmenningu, fá þér kaffi og köku, eða einfaldlega skemmta þér með einn kaldan á kantinum. Þá er Edinborg Bistró  staðurinn þinn. Á veitingastaðnum er fjölbreytt dagskrá allan ársins hring meðal annars myndlistarsýningar, bjórbingó, diskótek, og lifandi tónlist.    Borðapantanir og nánari upplýsingar í s: 456-8335 
Hótel Flatey
Gisting er í nýuppgerðum pakkhúsum í miðju þorpsins í Flatey, í Eyjólfspakkhúsi, Stóra-Pakkhúsi og veitingasalur hótelsins er í samkomuhúsinu. Eyjólfspakkhús stendur við samnefnda bryggju og þaðan er útsýni yfir Hafnareyna. Stóra-Pakkhús ásamt samkomuhúsinu eru þar við hliðina. Hótel Flatey býður nú upp á 6 tveggja manna herbergi, 1 fjölskylduherbergi (3 rúm), 3 svítur og 2 eins manns herbergi. Samtals 12 herbergi og 23 rúm. Öll herbergin eru með sameiginlegu baðherbergi. Morgunmatur er innifalinn í verðinu.
Hótel Ísafjörður
Hótel Ísafjörður er þægilegt heilsárshótel í höfuðstað Vestfjarða, Ísafirði. Hótelið er við Silfurtorg í hjarta bæjarins steinsnar frá allri þjónustu og höfninni. Í næsta nágrenni eru einnig sundlaug, upplýsingamiðstöð, söfn og strætisvagnar. Hótelið er allt innréttað í ljósum þægilegum litum og mjög vel í stakk búið til að þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptamanna. Á hótelinu er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir ferðamenn, fjölskyldur og fólk í viðskiptaerindum. Öll herbergin eru með sturtu, hárþurrku, sjónvarpi, síma, útvarpi og kaffi/te setti auk þess sem  frí háhraða nettenging er á öllum herbergjum og veitingasölum.  Hótelið er allt reyklaust. Á veitingastað hótelsins Við Pollinn er lögð áhersla á gæði jafnt í þjónustu sem matreiðslu og metnaður er lagður í að nýta hráefni úr nágrenninu  á sem fjölbreyttastan hátt.  Á Hótel Ísafirði er góð aðstaða til að taka á móti smærri og stærri hópum. Starfsfólk hótelsins leggur sitt af mörkum til að gera dvölina bæði ánægjulega og þægilega og hefur faglegan metnað til að takast á við viðfangsefni af ýmsu tagi. Persónuleg þjónusta og heimilislegt andrúmsloft hótelisins og nálægð við einstæða náttúru skapar öðruvísi umgjörð.
Café Riis
 Café Riis er klassískur veitingastaður, pizzeria & bar á Hólmavík þar sem rík áhersla er lögð á gæða hráefni úr okkar nær umhverfi.
Vegamót
Veitingastaður og verslun á Bíldudal
Hótel Heydalur / Ferðaþjónustan í Heydal
Sveitahótelið Heydalur er í 130 km fjarlægð frá Ísafirði og 320 km – 340 km fjarlægð frá Reykjavík eftir því hvaða leið er valin. Veitingasalur, sem er í gamalli hlöðu, rúmar 70 – 100 manns og fundaraðstaða er fyrir 10 – 40 manns. Boðið er upp á gistingu fyrir 59 manns í átta tveggja manna og einu þriggja manna herbergi í flokki 3  og átta tveggja manna og tveimur þriggja manna herbergjum í flokki 4 öll með sér baðherbergjum ásamt þremur sumarbústöðum, annars vegar 10 manna og hins vegar 4 – 5 manna. Gott tjaldsvæði sem er opið frá 1. júní fram í októberlok.  Gnægð afþreyingar er í boði. Lítil sundlaug í suðrænu gróðurhúsi, heitur frumlegur pottur og náttúrulaug vígð af Gvendi góða. Kajak og hestaleiga með leiðsögn við allra hæfi, bæði styttri ferðir og dagsferðir. Veiði í vötnum.   Á veturna snjóþrúgur og gönguskíði. Falleg gönguleið um dalinn sem eitt sinn hýsti 13 bæi. Friðaður birkiskógur. Fjölbreytt  fuglalíf og plöntugróður. Fugla og plöntuspjöld eru til fróðleiks.  Veitingasalurinn er öllum opinn. Boðið er upp á fjölbreyttan matseðil, þar sem áhersla er lögð á mat úr héraði, heimaræktuðu grænmeti og nýveiddan silung úr eigið eldi. Veitingastaðurinn er með vínveitingaleyfi.  Á tjaldsvæðinu er snyrtiaðstaða með heitu vatni, þrjú kvenna og karla klósett og sturtur sitt hvoru megin. Rafmagn fyrir húsbíla og tjaldvagna. Leiksvæði bæði fyrir börn og unglinga. Frábært umhverfi  til göngu og leikja í kjarrinu.  Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla  Gisting:  3 hús, 19 herbergi, 59 rúm
Stúkuhúsið Café / Restaurant
Stúkuhúsið er notalegur veitingastaður á Patreksfirði sem er staðsettur á mjög góðum útsýnisstað nálægt sundlauginni. Opnunartíma og aðrar upplýsingar má finna á Facebook síðu Stúkuhússins og á heimasíðunni www.stukuhusid.is. Á matseðli er lögð áhersla á ferskasta fisk dagsins og að sjálfsögðu íslenska lambið. Fjölbreyttur matseðill þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, súpur, salöt,bökur o.s.frv. Heimabakaðar kökur og allar gerðir af ilmandi kaffidrykkjum.  
Verbúðin pub
Verbúðin pub, er krá í Bolungarvík þar sem þyrstir og þreyttir ferðalangar geta sest niður skipst á ævintýralegum fiskisögum á meðan þeir dreypa á dýrindis veigum. Þema kráarinnar er byggir á sögu Bolungarvíkur sem sjávarþorpi og eru munir frá gömlum tímum hangandi um alla veggi sem veita gestum innsýn í gamla og góða tíma.
Hótel Laugarhóll
AÐSTAÐA Hótel Laugarhóll er heimilislegt, sveitahótel í gróðursælum dal á Ströndum, miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Boðið er upp á gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum, með eða án sér baðs. Einnig er tekið er á móti hópum, allt að 40 manns í uppbúin rúm. Á Laugarhóli er að finna notalega setustofu með nettengingu, veitingastað, íþróttasal og gallerí, sundlaug og heitan pott. Skammt frá hótelinu er tjaldsvæði með rennandi vatni og salernum.  Tjaldsvæðið er opið frá 1. júní til 1. september.   Utan háannatíma hentar staðurinn einstaklega vel til funda-, námskeiða- og ráðstefnuhalds og ekki síður sem æfingabúðir fyrir kóra, leik- og íþróttahópa, björgunarsveitir eða gönguskíðagarpa,     AFÞREYING Við hótelið stendur Gvendarlaug hins góða, ylvolg sundlaug, með náttúrulegu heitu vatni (32°C) og náttúruleg heit uppspretta (42°C), vinsæll viðkomustaður hjá lúnum ferðalöngum. Í næsta nágrenni eru fjölbreyttar og fallegar gönguleiðir, silungsveiði, hestaleiga, sjóstangveiði og lundaskoðun, ósnert og víða stórbrotin náttúra og ævintýralegar rekafjörur sem eru eitt helsta tákn Strandasýslu.   VEITINGASTAÐUR Boðið er uppá veitingar í björtum og notalegum borðsal með útsýni yfir sveitina. Þar má gæða sér á bragðgóðum, heimilislegum mat úr héraði í bland við framandi rétti. Á boðstólum er að jafnaði ferskt sjávarfang, heimalagaðar súpur og nýbakað brauð, ásamt grænu salati og kryddjurtum úr garðinum, að ógleymdum girnilegum eftirréttum.   KOTBÝLI KUKLARANS Strandir hafa löngum verið kenndar við galdra og í Bjarnarfirði bjó Svanur galdramaður á Svanshóli sem getið er í upphafskafla Njálu. Kotbýli kuklarans er annar áfangi Galdrasafnsins á Hólmavík og stendur við hlið Gvendarlaugar. Það sýnir vel þær aðstæður sem almúgafólk á Ströndum bjó við á tímum galdrafársins og fátæklegur aðbúnaðurinn útskýrir ef til vill þörf þess til að sækja sér styrk í kukl.   GVENDARLAUG HINS GÓÐA Sundlaugin á sér merka sögu en hún var byggð á fimmta áratug síðustu aldar með sameiginlegu átaki bænda úr hreppnum. Nýleg sundskýli eru við laugina og í anddyri þeirra er sýning sem greinir í máli og myndum frá byggingu laugarinnar.   GVENDARLAUG HIN FORNA Skammt ofan við sundskýlin er Gvendarlaug hin forna, náttúruleg heit uppspretta, blessuð í byrjun 13. aldar af Guðmundi góða fyrrum Hólabiskupi. Hún er talin búa yfir lækningamætti og er nú friðuð og í umsjá Þjóðminjasafns Íslands.   STAÐSETNING Frá Reykjavík er rúmur þriggja stunda akstur (258 km) að Laugarhóli, gegnum Borgarnes og Búðardal til Hólmavíkur. Þaðan liggur leiðin fyrir botn Steingrímsfjarðar og yfir Bjarnarfjarðarhálsinn. Hótel Laugarhóll er við veg nr. 643.
Fisherman Hótel
Fisherman er ferðaþjónn á Suðureyri sem hefur m.a. 18 herbergi í boði fyrir gesti sem vilja upplifa sjávarþorpið Suðureyri og Vestfirði í heild sinni. Við höfum bæði herbergi með sameiginlegu baðherbergi og einnig herbergi með sér baðherbergi. Öll herbergi og veitingarými eru reyklaus og því miður getum við ekki leyft dýrum að koma með að tillitsemi við aðra gesti. Tengsl ferðaþjónustu og atvinnulífs í litlu vistvænu sjávarþorpi hefur notið vinsælda meðal okkar gesta. Hægt er að heimsækja þorskinn í lóninu, skella sér á sjóinn sem háseti á línubát, heimsækja fiskvinnsluna á staðnum eða fara í matarferð með leiðsögn um vistvænt sjávarþorpið. Við erum stolt af því að vera ferðaþjónar í sjávarþorpinu Suðureyri og okkur langar að hjálpa þér að upplifa Sjávarþorpið Suðureyri. Skoðaðu úrvalið af gistingu á heimasíðunni okkar.
Gistiheimilið Malarhorn
Á gistiheimilinu Malarhorni er boðið upp á að leigja hús með 4 svefnherbergjum og eldhúsi (hús nr. 2), tveggja manna herbergi með snyrtingu og sturtu í 10 herbergja húsi (hús nr. 1),íbúð með aðgengi fyrir fatlaða, fjölskylduherbergi og lúxusherbergi, 27 fm hvort (hús nr. 3). Veitingahúsið Malarkaffi er rekið á sama stað, auk þess sem boðið er upp á siglingar út í eyjuna Grímsey, þar sem hægt er að njóta fjölskrúðugs fuglalífs yfir sumartímann. Einnig er möguleiki á sjóstangveiði.
Ögur Travel
Ögur Travel er staðsett í Ögri við Ísafjarðardjúp, 106 km frá Ísafirði. Tímabilið hjá okkur hefst í lok maí og er út september. Farið er í ferðir allt árið ef pantað er með fyrirvara. Kaffi- og veitingasala á staðnum frá miðjum júní. Við getum útvegað svefnpokapláss en að öðru leyti vísum við fólki á gistingu í Reykjanesi, Heydal, Ísafirði, Dalbæ og víðar. Ögur Travel getur útbúið heildarpakka með ferðum, gistingu, veitingum og nesti. Frítt er fyrir 15 ára og yngri í gönguferðir. Tungumál er íslenska, enska og Norðurlandamál (sænska og danska). Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar.
Hamraborg ehf
Einarshúsið
Einarshúsið í Bolungarvík er timburhús byggt árið 1902.  Húsið stendur á besta stað við höfnina með útsýni yfir Ísafjarðardjúp og fjöllin í kring.  Það var byggt af Pétri Oddsyni athafnamanni sem bjó þar og rak verslun.  Eftir daga Péturs keypti Einar Guðfinnsson húsið, rak þar verlsun og stýrði þaðan viðskiptaveldi sínu.  Húsið hefur verið gert upp í upprunalegri mynd og er þar rekið gistihús allt árið ásamt veitingarekstri yfir sumarmánuðina. Einarshúsið er með 8 herbergjum, 6 tveggja manna, eitt þriggja manna ásamt þriggja manna svítu.  Herbergin eru öll með vaski en önnur baðherbergisaðstaða er sameiginleg.   Frítt og hraðvirkt þrálaust net er í herbergjum og sameiginlegum rýmum hússins. Veitingastaðurinn er opinn alla daga frá 11:45 - 20:30 á sumrin en opnunartíminn er heldur takmarkaðri yfir vetrartímann. Einarshúsið hefur getið sér gott orð fyrir saðsamar og glæsilegar pizzur sem hægt er að fá allan daginn en einnig er boðið upp á rétt dagsins af einföldum og góðum íslenskum heimilismat. Hægt er að fá morgunverð með gistingu sé þess óskað. Á útiverönd er hægt að njóta matar og drykkjar á hlýjum sumardögum. Í Bolungarvík og nágrenni er margt að skoða, má þar nefna sjóminjasafnið Ósvör,  Náttúrugripasafn Bolungarvíkur, sundlaug Bolungarvíkur, útsýnið af Bolafjalli og keyra yfir til Skálavíkur.  Ísafjörður er aðeins 13 km frá Bolungarvík.
Hótel Flókalundur
Hótel Flókalundur er lítið fjölskyldurekið sumarhótel í Vatnsfirði á sunnanverðum Vestfjörðum, um það bil 6 km frá Brjánslæk þar sem ferjan Baldur kemur að landi. Hótelið er miðsvæðis á Vestfjörðum og stutt í margar af helstu náttúruperlum landsfjórðungsins.  Vatnsfjörður er friðland og þekktur fyrir náttúrufegurð og fjölbreytt lífríki. Þar er mikil veðursæld og því gaman að njóta útiveru í gróðurríkum firðinum.  Sendu okkur tölvupóst til að fá nánari upplýsingar.  Hótel Flókalundur er opinn frá 20. maí - 15. september  GistingHótel Flókalundur er heimilislegt sveitahótel með 27 notalegum eins og tveggja manna herbergjum. Öll herbergin eru með sér baði (wc/sturta), auk þess sem rúmgóð setustofa með sjónvarpi er á hótelinu. Hjólastólaaðgengi er í tveimur af herbergjunum. VeitingarVeitingasalur er opinn frá 7:30 til 23:00. Morgunverðarhlaðborð er frá 7:30 til 10:00 og í hádegi er boðið upp á rétt dagsins ásamt smáréttaseðli sem hægt er að panta af allan daginn. Hægt er að fá mat af kvöldverðarmatseðli og smáréttaseðli til 21:00. Barinn er opinn til 23:00. BensínstöðHægt er að kaupa eldsneyti af sjálfsala. TjaldsvæðiTjaldsvæði er stutt frá hótelinu þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og í þjónustuhúsi eru salerni, vatn, sturtur og aðstaða fyrir uppvask.

Aðrir (18)

Resk Bistro Grundarbraut 2 355 Ólafsvík 4366625
Hótel Bjarkalundur Reykhólasveit 380 Reykhólahreppur 5621900
Mamma Nína Pizzeria Austurvegur 1 400 Ísafjörður 4564454
Tjöruhúsið Neðstikaupstaður 400 Ísafjörður 456-4419
Heimabyggð Kaffihús Aðalstræti 22b 400 Ísafjörður 6974833
Húsið Kaffihús Hrannargata 2 400 Ísafjörður 4565555
Ferðaþjónustan Dalbæ Snæfjallaströnd 401 Ísafjörður 690-4893
Hótel Reykjanes Reykjanes 401 Ísafjörður 456-4844
Víkurskálinn í Bolungarvík Þuríðarbraut 13 415 Bolungarvík 456-7554
Læknishúsið á Hesteyri Læknishúsið Hesteyri 415 Bolungarvík 881-46094
Vagninn Hafnarstræti 19 425 Flateyri 456-7751
Vestur restaurant Aðalstræti 110 450 Patreksfjörður 456-1515
Hótel Breiðavík við Látrabjarg Látrabjarg 451 Patreksfjörður 456-1575
Hótel Látrabjarg Fagrihvammur, Örlygshofn 451 Patreksfjörður 456-1500
Hópið Veitingastaður Hrafnadalsvegur 3 460 Tálknafjörður 8957341
Hótel Sandafell Hafnarstræti 7 470 Þingeyri 456-1600
Hveravík/Söngsteinn Hveravík 511 Hólmavík 892-8187
Kaffi Norðurfjörður Norðurfjörður 524 Árneshreppur 451-4034