Wild west rocky
Wild West Rocky er lítið, fjölskyldurekið ævintýrafyrirtæki á Vestfjörðum sem býður upp á leiðsagðar fjórhjólaferðir um náttúruna í kringum Dýrafjörð. Fyrirtækið er rekið af heimafólki og mótast ferðirnar af sterkum tengslum við landið og einlægum áhuga á að deila því með öðrum. Að ferðast með Wild West Rocky er tækifæri til að upplifaVestfirði í návígi – frá kyrrlátum fjörðum og fjallshryggjum til falinna slóða sem flestir ferðamenn sjaldan fá að upplifa. Á leiðinni fá gestir innsýn í mannlíf, sögur og hina hráu náttúru sem mótar þennan afskekkta hluta Íslands.
View
ATV - Ísafjörður
ATV - Ísafjörður býður upp á fjórhjólaferðir með leiðsögn, þar sem hægt er að upplifa fjölbreytta náttúru í nágrenni Ísafjarðar á öruggan, einfaldan og skemmtilegan hátt í litlum hópum.
Við förum eftir malarslóðum, skoðum og upplifum staði sem erfitt getur verið er að nálgast á annan hátt. Uppi í fjöllunum er stórkostlegt útsýni og hægt að sjá yfir í næstu firði.
Okkar vinsælasta ferð er tveggja tíma ferð en hægt er að sérsníða ferðir fyrir hvern og einn. Hjólin okkar eru tveggja manna og einfalt að aka. Þú færð heilgalla, hjálm, hanska og leiðsögn. Allir sem hafa ökuréttindi geta ekið fjórhjóli og farþegar þurfa að vera 14 ára. Hámarksfjöldi í ferð er 8 manns (4 ökumenn og 4 farþegar).
View
Aðrir (2)
| ATV Rental Tálknafirði | Lækjarbakki | 460 Tálknafjörður | 866-0490 |
| Activity Tours | Holtagata 6 | 520 Drangsnes | 771-6901 |