Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ýmis afþreying er í boði yfir vetrartímann og má þar nefna norðurljósaferðir, vetraríþróttir og ýmsar skoðunarferðir. 

Hidden Iceland
Hidden Iceland er fjölskyldurekið ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dagsferðum sem og pakkaferðum hér á landi. Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á persónusniðnar ferðir með litlum hópum, að hámarki 12 manns, um land allt. Í öllum ferðum Hidden Iceland fer reyndur leiðsögumaður með hópinn sem fræðir og skemmtir en umfram allt sér til þess að fyllsta öryggis sé gætt. Leiðsögumenn okkar hafa allir áralanga þjálfun, þekkingu á Íslandi, sögunni og jarðfræðinni. Við höfum hannað ferðirnar okkar þannig að við værum ekki bara spennt heldur stolt að taka fjölskyldu okkar og vini með í för til að upplifa töfra Íslands. ÁætlunarferðirHidden Iceland býður upp á úrval dags og pakkaferða frá Reykjavík. Hvort sem það er dagsferð um gullna hringinn í náttúruböðum og matarupplifun, tveggja daga ævintýraferð um suðurströndina endilanga með jöklagöngu á einum af stórkostlegu jöklunum innan Vatnajökulsþjóðgarðs eða fjögurra daga ferðalag um vestfirsku fjöllin og firðina. Sérferðir og ferðaskipulagningHidden Iceland býður einnig upp á sérferðir fyrir pör og hópa hvort sem að það eru dagsferðir frá Reykjavík eða lengri ferðir hringinn í kringum landið. Ferðirnar eru allar sérsniðnar að hverjum hóp fyrir sig, með eða án leiðsagnar, þar sem Hidden Iceland sér um að bóka gistingu, afþreyingu og samgöngur. Hvataferðir og fyrirtækjapakkarVið bjóðum upp á ýmsar spennandi hvataferðir og fyrirtækjapakka sem er sérsniðinn að þínum hóp. Tilvalið fyrir árshátíðarferðina, stórafmælið eða hópeflið. Hafið samband við Hidden Iceland og við setjum saman fullkomna ferð fyrir þinn hóp. Þá er ekkert annað að gera en að reima á sig gönguskónna og slást í för með okkur í næsta ævintýri! Við hlökkum til að fá ykkur með. Frekari upplýsingar má nálgast á www.hiddeniceland.is eða senda tölvupóst á info@hiddeniceland.is. 
Borea Adventures
Borea Adventures á Ísafirði býður upp á ævintýraferðir með leiðsögn fyrir minni og stærri hópa. Fyrirtækið á og rekur hraðbátinn Bjarnarnes sem flytur allt að 18 farþega í skipulögðum ferðum og sérferðum um Hornstrandir, Jökulfirði og Ísafjarðardjúp. Borea Adventures býður upp á ýmsar ferðir um friðlandið, þar sem gist er í tjöldum, tjaldbúðum í Hornvík eða í nýuppgerða eyðibýlinu á Kvíum í Jökulfjörðum.  Borea Adventures býður upp á fjölbreytt úrval lengri ferða, sem og dagsferða út frá Ísafirði. Kayakferðir um ævintýralega firði Hornstranda og Jökulfjarða, fjölbreyttar göngur um Hornstrandir og nágrenni Ísafjarðar, skíðaferðir, fjallahjólaferðir og náttúruupplifanir. Einnig eru í boði sérferðir, sérsniðnar að þörfum þeirra sem okkur vilja heimsækja.  Borea Adventures býr að einvala liði reynslumikilla og skemmtilegra leiðsögumanna, sem tryggja það að allir fari heim með bros á vör. 
Ísafjörður Guide - Helga Ingeborg Hausner
 Eitthvað sérstakt - Nature and Cultural Walks with a view of Ísafjörður  Ísafjarðarganga - Áhugaverð ferð í gegnum tímann   Leiðsögukonan er klædd einsog fiskverkakona frá 19. öld og leiðir ykkur í gegnum bæinn og upp í hlíðina fyrirofan Ísafjörð. Hún sýnir áhugaverða staði, gefur innsýn inn í sögu Ísafjarðarog segir sögur og sagnir bæði úr fortíð og nútíð. Það eru sögur um vættir okkareins og álfum, tröllum og draugum. Leiðsögukona skiptir nestinu sínu með gestum.(2 klst.)  Ef þú vilt fá innsýn í sögu Ísafjarðar og heyra fleiri sögur og sögur um fólkið, drauga, álfa, tröll og aðrar dulrænar verur forna og nútíma Álfar, tröll og sögur (2 tímar), væri réttur ganga fyrir þig. Einnig er gangan án hæðarmunar.  Í lok þessar tvær ferðar er gefinn kostur á því að lengja ferðina um: Into Nature (1 hour) Traditional Tasting (20 min.) Vistit the Church (20 min)   Aðrir gönguferðir eru: Jarðsögu og jarðfræði (3 klst.)Gróður Vestfjarða eða Haustlitir (3 klst.)   Náttúruganga (5 klst.)Komdu að smakka (3,5 klst.)  Persónuleg leiðsögn skv.beiðniVinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.  
Skíðasvæðið á Ísafirði - Tungudalur/Seljalandsdalur
Skíðasvæðið á Ísafirði er tvískipt: Tungudalur: alpagreinarSeljalandsdalur: skíðaganga Í Tungudal er eina alpagreinasvæðið á Vestfjörðum. Þar eru 3 lyftur og skíðaskáli og mjög góð aðstaða með fjölbreyttum brekkum fyrir alla, jafnt byrjendur sem lengra komna. Einnig eru þar alþjóðlegar keppnisbrautir fyrir svig og stórsvig. Skíðasvæðið er allt upplýst. Hægt er að leigja skíða- og brettabúnað í skíðaskálanum. Á Seljalandsdal er mjög gott göngusvæði með fjölbreyttum og upplýstum brautum, allt frá stuttum byrjendabrautum upp í krefjandi leiðir fyrir keppnisfólk. Brautakerfið lengist smátt og smátt eftir því sem líður á veturinn og síðla vetrar, þegar veður og aðstæður leyfa, má oft finna frábærar brautir sem bjóða upp á skíðaferðir sem spanna tugi kílómetra. Hægt er að leigja búnað á staðnum. Þegar snjóalög eru hagstæð má oft einnig finna troðnar göngubrautir í Tungudal, á svæðinu við golfvöllinn og tjaldsvæðið.  Opnunartími: Sjá heimasíðu.  Sími á skíðasvæði er 450-8400 og 456-3125. Símsvari á skíðasvæði: 878-1011.
Iceland Travel
Iceland Travel býður upp á fjölbreytt úrval ferða á Íslandi, mestmegnis fyrir erlenda ferðamenn.  Í boði eru allt frá dagsferðum með afþreyingu upp í lengri ferðir með faglegri leiðsögn, bæði fyrir hópa og einstaklinga. Við tökum einnig að okkur að skipuleggja ráðstefnur, viðburði, fundi og hvataferðir.
Wild Westfjords
Við bjóðum uppá einkaferðir um Vestfirði á flottum og þægilegum 8 farþega breyttum Sprinter - fullkominn ferðamáti fyrir gamla góða vestfirska þjóðvegi og vegleysur.  Hafið samband til þess að fá tilboð í ferð eða skutl. www.wildwestfjords.com 
Iceland backcountry travel ehf.
Iceland BackCountry Travel býður uppá sérsniðnar margra daga ferðir fyrir allt að 17 manna hópa í litlum rútum. Einnig er boðið uppá sérsniðnar ferðir og sætaferðir á mikið breyttum fjallajeppum. Útsýnisferðir, ljósmyndaferðir með áherslu á heimskautarefinn eða annað dýralíf eftir óskum hvers og eins. Norðurljósaferðir, jöklaferðir, gönguferðir og náttúrulaugar. Ferðir frá 2 klst og uppúr. Sérsniðnar ferðir eftir þínum óskum um allt Ísland mögulegar. Hafið samband til að fá tilboð í draumaferðina ykkar.
Vesturferðir
Ef Vestfirðir eru áfangastaðurinn þá erum við þjónustuaðilinn sem þig vantar. Við erum staðsett á Ísafirði og sjáum um sölu og bókanir í alla afþreyingu, dagsferðir, bátaáætlun til Hornstranda og lengri ferðir sem í boði eru á svæðinu. Vinsælustu dagsferðirnar okkar eru Vigurheimsókn og heimsókn til yfirgefna þorpsins Hesteyrar. Einnig kjósa margir að fara í hestaferðir, hvalaskoðun, leigja kayak eða hjól eða fara í jeppaferð. Hér er margt í boði og hægt að kynna sér ferðirnar á heimasíðu okkar www.vesturferdir.is.  Sala farmiða í HornstrandabátaHornstrandir eru ekki í alfaraleið og til að komast þanngað þarf að ferðast með bát.Vesturferðir selja miða í áætlunarferðir til friðlandsins frá Ísafirði með Sjóferðum og Borea Adventure. Við leggjum mikla áherslu á að bátarnir og fyrirtækin sem við vinnum með séu með öll tilskilin leyfi.  Við bjóðum hópum margskonar þjónustu, allt frá stuttum bæjarferðum með leiðsögn heimamanna til margra daga gönguferða með leiðsögn um Hornstrandir. Við hvetjum þig til að hafa samband við okkur og við setjum saman sérsniðið ferðatillögu og verðtilboð.
Hey Iceland
Hey Ísland – ferðaþjónusta bænda er ferðaskrifstofa landsbyggðarinnar. Við byggjum á yfir 35 ára reynslu og þekkingu í ferðaþjónustu á landsbyggðinni sem gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreytt úrval af gistingu um land allt og afþreyingu við allra hæfi í návist við náttúruna og friðsælt umhverfi sveitarinnar. Hey Ísland býður upp á fjölbreytt úrval af gistingu hjá yfir 160 gististöðum um land allt, frá fjölbreyttri bændagistingu yfir í hlýleg sveitahótel, sumarbústaði og íbúðir. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hjá Hey Ísland, www.heyiceland.is. 

Aðrir (7)

Le Monde des Elfes +3368606199
Iceland Unlimited ehf. Borgartún 27 105 Reykjavík 415-0600
Absorb Iceland Rósarimi 1 112 Reykjavík 695-5566
Arctic Exposure Skemmuvegur 12 (blá gata) 200 Kópavogur 617-4550
Guðmundur Jónasson ehf. Vesturvör 34 200 Kópavogur 5205200
Arctic Advanced Rjúpnasalir 10 201 Kópavogur 777-9966
Keran Stueland Ólafsson / Travel-West Breiðavík 451 Patreksfjörður 865-4695