Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvi Sólu - Vestfirðir

12. ágúst 2026

Almyrkvi á sólu — Vestfirðir

Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á Vestfjörðum þann 12. ágúst 2026. Búist er við miklum fjölda gesta  og gera má ráð fyrir aukinni umferð, álagi á þjónustu, mikilli eftirspurn eftir bílastæðum og tjaldsvæðum.

Á þessari síðu má finn hagnýtar upplýsingar sem nýtast ferðamönnum sem æta að heimsækja Vestfirði dagana í kringum Almyrkva, þar má nefna upplýsingar um útsýnisstaði, öryggi, gistingu á tjaldsvæðum og svör við algengum spurningum fyrir og meðan á atburðinum stendur.

Tímasetningar

Deildarmyrkvi hefst: 16:43
Myrkvinn nær hámarki: 17:45
Deildarmyrkva lýkur: 18:45

Nákvæmar tímasetningar og lengd almyrkva eru mismunandi eftir staðsetningu. Notið kortið til að sjá upplýsingar fyrir hvern stað.

Mætið snemma, dveljið lengi og komið undirbúin.

Veljið útsýnisstað fyrirfram, gerið ráð fyrir auknum ferðatíma og tíma til að finna bílastæði, og verið tilbúin að dvelja áfram eftir að myrkvanum lýkur til að draga úr umferðartöfum.

Áður en lagt er af stað

• Nýtið ykkur skilgreinda safnstaði þar sem það er mögulegt

• Skoðið kortið til að sjá tímasetningar fyrir ykkar staðsetningu

• Gera má ráð fyrir umferðartöfum fyrir og eftir myrkvann

• Alls ekki stöðva eða leggja bílum í vegköntum

• Á afskekktum svæðum er þjónusta og farsímasamband takmarkað

• Takið með mat, vatn, hlý föt og hafið nægt eldsneyti eða hleðslu

Síðan verður uppfærð eftir því sem nánari upplýsingar berast varðandi umferðarstýringu, safnstaði og öryggi.

Kort af almyrkvaslóð

Safnstaðir á Vestfjörðum

Gestir eru hvattir til að nýta sér skilgreinda safnstaði í þéttbýlum á Vestfjörðum. Á skilgreindum safnstöðum er þjónustustigið almennt betra, aðgengi að bílastæðum, salernum, þjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Lengd almyrkva er mismunandi eftir staðsetningu. Á flestum skilgreindum safnstöðum er hægt að horfa á almyrkvan í meira en 1 mínútu og 30 sekúndur.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Norðanverðir Vestfirðir

Bolafjall

Bolungarvík

Útsýnisstaður ofan Bolungarvíkur.  Vegurinn upp á fjall verður lokaður fyrir almenna umferð. Rútuferðir flytja farþega upp á fjall.

Lengd almyrkva: 1m 39s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:36

Rútuferðir Möl

Skoða á korti →

Tjaldsvæði Bolungarvíkur

Bolungarvík

Safnstaður í þéttbýli með bílastæðum, salerni og aðgengi að þjónustu.

Lengd almyrkva: 1m 36s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:40

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Safnahúsið

Ísafjörður / Ísafjarðarbær

Miðlægur safnstaður á Ísafirði með góðu aðgengi að þjónustu og aðstöðu.

Lengd almyrkva: 1m 30s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:52

Fólksbílar Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Íþróttahúsið á Torfnesi

Ísafjörður / Ísafjarðarbær

Stór safnstaður á Ísafirði með salernum, bílastæðum og góðu aðgengi að þjónustu.

Lengd almyrkva: 1m 30s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:52

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Raggagarður

Súðavík

Fjölskyldugarður í Súðavík með salernum, bílastæðum og aðgengilegri aðstöðu.

Lengd almyrkva: 1m 25s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:58

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Íþróttamiðstöð Suðureyrar

Suðureyri / Ísafjarðarbær

Safnstaður í þéttbýli með salernum, bílastæðum og góðu aðgengi.

Lengd almyrkva: 1m 46s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:39

Fólksbílar Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Íþróttamiðstöð Flateyrar

Flateyri / Ísafjarðarbær

Safnstaður í þéttbýli með salerni og bílastæðum. Bílastæði eru takmörkuð og fólk er hvatt til að samnýta bíla þar sem hægt er.

Lengd almyrkva: 1m 46s

Myrkvinn í hámarki: 17:44:48

Fólksbílar Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Íþróttamiðstöð og sundlaug Þingeyrar

Þingeyri / Ísafjarðarbær

Safnstaður í þéttbýli með salernum, bílastæðum og góðu aðgengi.

Lengd almyrkva: 1m 48s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:07

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Sunnanverðir Vestfirðir

Félagsheimili Patreksfjarðar

Patreksfjörður / Vesturbyggð

Safnstaður í þéttbýli við tjaldsvæðið og þjónustu á Patreksfirði.

Lengd almyrkva: 2m 4s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:31

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði

Skoða á korti →

Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði Tálknafjarðar

Tálknafjörður / Vesturbyggð

Safnstaður við íþróttamiðstöðina og tjaldsvæðið á Tálknafirði, með salernum og bílastæðum.

Lengd almyrkva: 1m 59s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:31

Fólksbílar Rútur Malbik / möl Salerni Bílastæði

Skoða á korti →

Baldurshagi

Bíldudalur / Vesturbyggð

Safnstaður í þéttbýli með salernum og aðgengilegri aðstöðu. Bílastæði eru takmörkuð.

Lengd almyrkva: 1m 53s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:28

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Aðgengi Takmörkuð bílastæði

Skoða á korti →

Breiðavík

Nálægt Látrabjargi / Vesturbyggð

Mælt er með Breiðavík sem útsýnisstað nálægt Látrabjargi. Þar verða bílastæði og salerni á svæðinu. 

Lengd almyrkva: 2m 10s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:31

Fólksbílar Malarvegur Salerni Bílastæði

Skoða á korti →

Strandir

Arngerðareyri

Hólmavík / Strandabyggð

Safnstaður innst í Ísafjarðardjúpi með bílastæðum við flugvallarsvæðið.

Lengd almyrkva: 0 m 40s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:21

Fólksbílar Rútur Möl Bílastæði

Skoða á korti →

Látrabjarg

Búist er við að Látrabjarg verði einn fjölsóttasti staðurinn á Vestfjörðum á meðan á almyrkvanum stendur. Látrabjarg er sá staður þar sem hægt er að upplifa lengsta tíma almyrkva á landi. 

Lengd almyrkva: 2m 13s

Myrkvinn í hámarki: 17:45:34

Gestir þurfa að hafa í huga að Látrabjarg er afskekktur staður. Vegurinn er mjór og getur verið torfær sérstaklega dagana eftir rigningu, bílastæði eru takmörkuð, þjónusta er takmörkuð og farsímasamband getur verið ótryggt. Ferðatími getur einnig orðið mun lengri en venjulega á sjálfum deginum.

Áður en ákveðið er að fara að Látrabjargi er rétt að meta hvort safnstaður í þéttbýli eða í Breiðavík henti betur. Á mörgum safnstöðum má upplifa almyrkva í meira en 1 mínútu og 30 sekúndur, samhliða betra aðgengi að salernum, bílastæðum, mat, eldsneyti, hleðslustöðvum, skjóli og nálægð við heilbrigðisþjónustu.

Gestir sem velja að fara að Látrabjargi þurfa að undirbúa sig vel, gera ráð fyrir auknum ferðatíma, fylgja umferðarstýringu og vera tilbúnir að dvelja áfram á svæðinu eftir myrkvann til að draga úr umferðartöfum.

Drónaflug er óheimilt við Látrabjarg án leyfis viðeigandi yfirvalda. Svæðið er friðlýst og mikilvægt fyrir fuglalíf.

Skoða Látrabjarg á korti →

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Umferð og öryggi

Öryggi og umferðarupplýsingar

Búist er við miklum fjölda gesta á Vestfjörðum þann 12. ágúst 2026. Ferðatími getur orðið  en venjulega og umferðarstýring verður á nokkrum svæðum til að auka öryggi og tryggja aðgengi viðbragðsaðila.

Vegfarendur þurfa að gera ráð fyrir töfum, lægri hámarkshraða, tímabundnum takmörkunum á umferð og takmörkuðum bílastæðum við fjölsótta útsýnisstaði.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin

Með því að leggja snemma af stað og dvelja áfram á staðnum eftir að myrkvanum lýkur má draga úr álagi á vegakerfið. Tíminn strax eftir myrkvann getur orðið sérstaklega annasamur ef margir leggja af stað á sama tíma.

Áætluð umferðarstýring

Látrabjarg og Örlygshafnarvegur (612)

Tímabundin einstefna verður á Örlygshafnarvegi (612) í átt að Látrabjargi frá Barðastrandarvegi frá klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026.

Áætlaðar ráðstafanir:

  • Einstefna frá Barðastrandarvegi
  • Fjöldatakmörkun við Látrabjarg
  • Hámarkshraði lækkaður í 50 km/klst. á milli Breiðavíkur og Látrabjargs
  • Mögulegar takmarkanir fyrir stærri ökutæki ef ástand vegar kallar á það

Gestir sem ætla að fara að Látrabjargi þurfa að gera ráð fyrir auknum ferðatíma, hægri umferð og að dvelja áfram á svæðinu eftir að myrkvanum lýkur.

Rauðisandur og Rauðasandsvegur (614)

Tímabundin einstefna verður á Rauðasandsvegi (614) frá Barðastrandarvegi frá klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026.

Áætlaðar ráðstafanir:

  • Einstefna frá Barðastrandarvegi
  • Rútuumferð verður ekki heimil á Rauðasandsvegi (614) þann 12. ágúst
  • Fjöldatakmörkun getur verið sett á Rauðasandi ef þörf krefur

Gestir ættu ekki að gera ráð fyrir að hægt verði að aka óhindrað inn og út af svæðinu meðan á viðburðinum stendur. Fylgið merkingum og fyrirmælum á staðnum.

Bolafjall

Vegurinn upp á Bolafjall verður lokaður almennri umferð. Gestir munu ekki geta ekið einkabílum upp á fjallið.

Aðgengi:

  • Aðgengi upp á fjallið verður með rútum
  • Svæðið á toppnum er berskjaldað og veður getur breyst hratt

 

 

Mikilvæg ráð fyrir vegfarendur

• Skipuleggið ferðalagið áður en lagt er af stað

• Gera má ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega

• Ekki stöðva eða leggja bílum í vegköntum

• Notið skilgreinda safnstaði þar sem það er mögulegt

• Fylgið merkingum og fyrirmælum yfirvalda

• Haldið leiðum viðbragðsaðila greiðum

• Fyllið á eldsneyti eða hlaðið bílinn áður en lagt er af stað

• Takið með mat, vatn, hlý föt og nauðsynlegar vistir

Forðist skyndiákvarðanir

Ekki taka skyndiákvarðanir um ferðalög skömmu fyrir myrkvann. Mikil umferð á sama tíma getur fljótt skapað tafir og dregið úr öryggi. Veljið útsýnisstað fyrirfram, fylgist með opinberum upplýsingum og forðist óþarfa akstur síðustu klukkustundirnar fyrir myrkvann.

Eftir myrkvann

Gera má ráð fyrir umferðartöfum eftir að myrkvanum lýkur, þar sem margir gestir kunna að leggja af stað á sama tíma. Með því að dvelja lengur á staðnum má draga úr álagi á vegakerfið og stuðla að öruggari umferð.

Dveljið lengur — ef lagt er af stað strax eftir myrkvann má búast við bið í umferð.

Algengar spurningar um almyrkva

Hvar er mælt með að horfa á almyrkvann?

Á þessari síðu er kort þar sem hægt er að skoða útsýnisstaði víða um Vestfirði.
Með því að smella á stað á kortinu má sjá tímasetningar myrkvans og áætlaða lengd almyrkva á viðkomandi stað.

Gestir eru hvattir til að nýta skilgreinda safnstaði í þéttbýli á Vestfjörðum.
Þessir staðir eru betur undirbúnir til að taka á móti gestum og þar er aðgengi að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur.

Með því að vera í eða nálægt þéttbýli er einnig styttra í viðbragðsþjónustu, eldsneyti, mat, hleðslustöðvar og skjól ef veður breytist.

Mælt er með safnstöðum

Skilgreindir safnstaðir eru í eftirfarandi byggðakjörnum:

  • Hólmavík — Arngerðareyri, nálægt flugvellinum
  • Bolungarvík — Bolafjall, aðgengi með rútum
  • Bolungarvík — tjaldsvæðissvæði
  • Þingeyri — íþróttamiðstöð og sundlaug
  • Suðureyri — íþróttamiðstöð
  • Ísafjörður — Safnahúsið
  • Ísafjörður — íþróttahúsið á Torfnesi
  • Flateyri — íþróttamiðstöð
  • Bíldudalur — Baldurshagi
  • Tálknafjörður — íþróttamiðstöð og tjaldsvæði
  • Patreksfjörður — félagsheimili og tjaldsvæðissvæði
  • Súðavík — Raggagarður

Þessir staðir henta almennt betur til að taka á móti fjölda gesta en afskekktari staðir.

Hvað með afskekkta staði eins og Látrabjarg?

Látrabjarg og aðrir afskekktir staðir á Vestfjörðum bjóða upp á lengri almyrkva en margir aðrir staðir. Af þeim sökum hefur Látrabjarg fengið mikla athygli og búast má við að margir gestir vilji fara þangað.

Á slíkum stöðum er þó takmarkað rými og minni þjónusta en í þéttbýli. Aðkomuvegir geta verið þröngir, bílastæði takmörkuð og þjónusta á borð við salerni, eldsneyti og mat takmörkuð. Veður getur breyst hratt og ferðatími getur orðið lengri en búist er við. Viðbragðstími í afskekktum svæðum getur einnig verið lengri.

Gestir sem velja afskekktari staði þurfa að skipuleggja ferðina vel, gera ráð fyrir auknum ferðatíma og vera undirbúnir fyrir takmarkaða þjónustu.

Ráðlegging

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Gerið ráð fyrir lengri ferðatíma og tíma til að finna bílastæði. Verið tilbúin að dvelja áfram eftir að myrkvanum lýkur og takið með hlý föt, mat, vatn og nauðsynlegar vistir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Með því að velja safnstað í þéttbýli er líklegra að upplifunin verði öruggari.

Hvenær hefst myrkvinn, hvenær verður hann í hámarki og hvenær lýkur honum?

Tímasetningar og lengd myrkvans eru mismunandi eftir því hvar fólk er statt á Vestfjörðum.
Lengd almyrkva er frá um 2 mínútum og 13 sekúndum á vestustu stöðum niður í aðeins nokkrar sekúndur á öðrum stöðum.

Tímasetningarnar hér fyrir neðan eru almenn viðmið fyrir Vestfirði.

Tímasetningar

Deildarmyrkvi hefst — 16:43
Almyrkvi hefst — 17:44
Myrkvinn í hámarki — 17:45
Almyrkva lýkur — 17:46
Deildarmyrkva lýkur — 18:45

Gestir ættu að vera komnir á sinn stað vel áður en almyrkvi hefst, þar sem aðstæður og ferðatími geta verið breytileg eftir svæðum.

Hversu snemma ætti ég að mæta á útsýnisstað?

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Búist er við miklum fjölda gesta á Vestfjörðum á degi myrkvans. Ferðatími getur orðið lengri en venjulega og bílastæði og útsýnisstaðir geta fyllst fljótt.

Mælt er með því að mæta tímanlega og gera ráð fyrir lengri tíma í akstur, bílastæði og göngu að útsýnisstað. Eftir að myrkvanum lýkur má einnig gera ráð fyrir umferðartöfum og því er ráðlegt að dvelja áfram um stund áður en lagt er af stað.

Takið með hlý föt, mat, vatn og nauðsynlegar vistir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra. Veður getur breyst hratt og þjónusta getur verið takmörkuð á sumum svæðum.

Góður undirbúningur dregur úr álagi og stuðlar að öruggari upplifun fyrir alla.

Verða bílastæði við útsýnisstaði?

Já — bílastæði eru við skilgreinda útsýnis- og safnstaði, en fjöldi stæða verður takmarkaður.

Bílastæði verða undirbúin við safnstaði víða um Vestfirði. Þessir staðir eru valdir vegna þess að þar er hægt að taka á móti gestum með öruggari hætti og veita aðgang að grunnþjónustu.

Eftirspurn verður þó mikil og sum bílastæði geta fyllst fljótt. Umferðartafir eru einnig líklegar, sérstaklega þegar nær dregur almyrkvanum.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina fyrirfram, samnýta bíla þar sem hægt er og fylgja merkingum og leiðbeiningum á staðnum.

Ekki leggja í vegköntum eða á svæðum sem ekki eru merkt sem bílastæði. Slíkt getur skapað hættu og hindrað aðgengi viðbragðsaðila.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má ég stöðva bílinn í vegkanti til að horfa á myrkvann?

Nei — ekki er mælt með því að stöðva í vegkanti og slíkt getur verið hættulegt.

Bílar í vegköntum geta hindrað umferð og tafið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp. Jafnvel stutt stopp geta skapað hættu, sérstaklega á þröngum vegum eða þar sem skyggni er takmarkað.

Gestir eru hvattir til að nota skilgreinda útsýnisstaði, bílastæði eða safnstaði þar sem öruggt er að stöðva og fylgjast með myrkvanum.

Skipuleggið ferðina fyrirfram og gerið ráð fyrir nægum tíma til að komast á valinn stað.

Verða umferðartafir eða vegalokanir á degi myrkvans?

Já — búast má við mikilli umferð og tímabundnum takmörkunum á sumum vegum.

Mikill fjöldi gesta verður á ferð um Vestfirði og tafir eru líklegar bæði fyrir og eftir myrkvann. Umferðarstýring verður á ákveðnum svæðum til að auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar komist leiðar sinnar ef þörf krefur.

Aukinn viðbúnaður verður hjá lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, landvörðum og heilbrigðisþjónustu á svæðinu.

Áætlaðar umferðartakmarkanir á Vestfjörðum

Tímabundin einstefna verður á eftirfarandi vegum:

  • Örlygshafnarvegur (612)
  • Rauðasandsvegur (614)

Einstefna frá Barðastrandarvegi hefst klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026.
Eftir myrkvann verður umferð stýrt til baka eftir sömu leið.

Markmið þessara ráðstafana er að:

  • tryggja aðgengi viðbragðsaðila
  • draga úr hættu á umferðarteppum og slysum
  • bæta öryggi allra vegfarenda

Gestir eru beðnir um að fylgja fyrirmælum yfirvalda.

Ráðlegging

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkvanum lýkur má draga úr umferðartöfum og stuðla að öruggari umferð.

Skipulagning fyrirfram er besta leiðin til að draga úr töfum og óþarfa álagi.

Þarf sérstök gleraugu til að horfa á sólmyrkvann?

Já — nota þarf sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur til að fylgjast með myrkvanum.

Venjuleg sólgleraugu, sama hversu dökk þau eru, eru ekki örugg til að horfa beint í sólina. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun og minnka birtu sólarinnar niður á öruggt stig.

Hvenær þarf að nota sólmyrkvagleraugu?

  • Nota þarf gleraugun í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.
  • Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.

Hvað þarf að athuga?

Örugg sólmyrkvagleraugu ættu að:

  • vera merkt með alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 12312-2
  • vera laus við rispur, göt eða skemmdir
  • sitja vel og hylja augun að fullu

Þessi staðall sýnir að gleraugun eru sérstaklega ætluð til að horfa beint á sólina.

Á vefsíðunni https://solmyrkvagleraugu.is/ má finna úrval af sólmyrkvagleraugum.

Hvar finn ég salerni og grunnþjónustu?

Salerni og grunnþjónusta verða við skilgreinda safnstaði í þéttbýli á Vestfjörðum.

Þessir staðir hafa verið valdir vegna þess að þar er hægt að taka á móti gestum með öruggari hætti og veita aðgang að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum, sorplosun og aðstoð ef þörf krefur. Margir staðanna eru við íþróttamiðstöðvar, tjaldsvæði eða félagsaðstöðu þar sem þjónusta er þegar til staðar.

Þjónusta getur verið takmörkuð á afskekktum stöðum og þar er ekki víst að finna mat, eldsneyti eða hleðslustöðvar.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina og nota safnstaði þar sem það er mögulegt.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með það sem þið þurfið fyrir nokkrar klukkustundir utandyra, þar á meðal mat, vatn, hlý föt og nauðsynlegar vistir.

Hvar get ég tjaldað eða gist?

Gestir sem ætla að gista á Vestfjörðum ættu að nýta skilgreind tjaldsvæði, gistiheimili eða aðra skráða gistingu.

Gisting í tjaldvögnum, húsbílum og sambærilegum ökutækjum er almennt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða þar sem gisting er sérstaklega leyfð. Gistirými og pláss á tjaldsvæðum getur verið takmarkað, sérstaklega í kringum almyrkvann, og því er mikilvægt að skipuleggja sig tímanlega.

Upplýsingar um tjaldsvæði, aðstöðu og tengiliði má finna hér:

Sjá tjaldsvæði á Vestfjörðum

Hvað á ég að gera ef veðrið er slæmt þar sem ég er?

Veður á Vestfjörðum getur verið mjög mismunandi eftir svæðum. Það getur verið skýjað á einum stað en bjartara annars staðar. Gestir eru þó hvattir til að forðast skyndiákvarðanir um akstur á síðustu stundu, þar sem slíkt getur skapað umferðartafir og dregið úr öryggi.

Besta leiðin er að velja útsýnisstað fyrirfram, mæta snemma og vera undirbúin að dvelja þar meðan á viðburðinum stendur.

Forðist óþarfa akstur síðustu klukkustundirnar fyrir myrkvann.

Ágúst er sumar á Íslandi, en veður getur samt breyst hratt. Hiti getur verið lágur, vindur sterkur og rigning algeng — sérstaklega þegar staðið er úti í nokkrar klukkustundir.

Notið opinberar upplýsingaveitur fyrir nýjustu upplýsingar:

Ef veður verður hættulegt, til dæmis vegna mikils vinds, lélegs skyggnis eða erfiðra vegaaðstæðna, skal fylgja leiðbeiningum yfirvalda og viðbragðsaðila.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með hlý og vatnsheld föt, mat, vatn og það sem þið þurfið fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Hversu margir verða á útsýnisstöðunum?

Erfitt er að segja nákvæmlega til um fjölda á hverjum stað. Hins vegar er búist við miklum fjölda gesta á Vestfjörðum og margir staðir geta fyllst.

Bílastæði, tjaldsvæði og þjónusta eru takmörkuð víða og sum svæði geta fyllst fyrr en búist er við. Þegar staður er fullur getur aðgengi verið takmarkað eða umferð beint annað.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina fyrirfram og gefa sér góðan tíma til að komast á valinn stað.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að mæta snemma aukast líkur á að finna öruggt bílastæði og koma sér fyrir áður en mesta umferðin hefst. Með því að dvelja áfram eftir myrkvann má draga úr umferðartöfum og auðvelda umferðarstýringu og viðbragðsaðilum að sinna sínu hlutverki.

Með mat, vatni, hlýjum fötum og nauðsynlegum vistum er auðveldara að bíða við annasamar aðstæður.

Þarf að bóka gistingu fyrirfram?

Já. Gisting á Vestfjörðum verður mjög takmörkuð á meðan á almyrkvanum stendur.
Mörg hótel og gistiheimili hafa verið fullbókuð lengi, í sumum tilvikum í meira en tvö ár.

Tjaldsvæði eru víða á Vestfjörðum, en mörg þeirra eru ekki með bókunarkerfi. Þar gildir því oft fyrstur kemur, fyrstur fær.

Eina raunhæfa leiðin til að tryggja pláss á tjaldsvæði getur verið að mæta snemma.

Lista yfir tjaldsvæði á Vestfjörðum, ásamt staðsetningu og tengiliðaupplýsingum, má finna hér:
Tjaldsvæði á Vestfjörðum

Gestir eru hvattir til að skipuleggja gistingu tímanlega og gera ráð fyrir auknum ferðatíma, þar sem tjaldsvæði geta fyllst fljótt.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verða viðbragðsaðilar á útsýnisstöðum?

Já. Viðbragðsaðilar verða að störfum á Vestfjörðum meðan á almyrkvanum stendur, þar á meðal lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið og heilbrigðisþjónusta. Aukinn viðbúnaður verður til að styðja við öryggi og bregðast við atvikum ef þörf krefur.

Margir safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir vegna þess að þeir eru nálægt nauðsynlegri þjónustu og auðveldara er að sinna þeim ef eitthvað kemur upp.

Hafa þarf í huga að úrræði eru takmörkuð og viðbragðstími getur verið lengri á afskekktum stöðum eða þegar mikil umferð er á vegum. Gestir þurfa að skipuleggja sig og bera ábyrgð á eigin undirbúningi.

Með því að velja útsýnisstað í eða nálægt þéttbýli er styttra í aðstoð, aðstöðu og upplýsingar ef þörf krefur.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma.

Hvað gerist ef neyðartilvik kemur upp?

Ef neyðartilvik kemur upp skal hringja í 112.
Viðbragðsaðilar — þar á meðal lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið og heilbrigðisþjónusta — verða að störfum á Vestfjörðum meðan á almyrkvanum stendur.

Fylgið fyrirmælum viðbragðsaðila, starfsfólks eða sjálfboðaliða á staðnum. Þau eru til staðar til að halda utan um aðstæður með öruggum hætti.

Í flestum tilvikum er öruggast að halda kyrru fyrir nema fyrirmæli berist um annað. Óþarfa hreyfing getur skapað umferðartafir og gert viðbragðsaðilum erfiðara fyrir.

Margir safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir vegna þess að þeir eru nálægt þjónustu og auðveldara er að sinna þeim ef neyðartilvik kemur upp.

Gestir geta stuðlað að öryggi með því að skipuleggja sig, fylgja leiðbeiningum og vera undirbúnir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Mætið snemma, dveljið lengur, komið undirbúin og sýnið aðgát.

Verða takmarkanir á aðgengi að ákveðnum svæðum?

Já. Tímabundnar aðgangstakmarkanir og umferðarstýring verða á sumum svæðum á Vestfjörðum á degi myrkvans. Þessar ráðstafanir eru til að stýra fjölda, auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar komist leiðar sinnar ef þörf krefur.

Á sunnanverðum Vestfjörðum verða Örlygshafnarvegur (612) og Rauðasandsvegur (614) með tímabundna einstefnu frá klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026. Eftir viðburðinn verður umferð stýrt til baka eftir sömu leiðum.

Auk þess verður vegurinn upp á Bolafjall lokaður almennri umferð.
Gestir verða fluttir með rútum upp á svæðið og bílastæði verða við brottfararstað rútna. Þessi tilhögun er nauðsynleg til að stýra umferð og tryggja öryggi á berskjölduðu fjallasvæði.

Önnur svæði geta einnig verið með tímabundnar takmarkanir, takmörkuð bílastæði eða stýrt aðgengi eftir aðstæðum.

Gestir eru hvattir til að:

  • fylgja vegmerkingum og fyrirmælum lögreglu og starfsfólks
  • virða lokanir og afmörkuð svæði
  • skipuleggja leiðina fyrirfram
  • gera ráð fyrir auknum ferðatíma

Ráðstafanirnar eru til að stuðla að öryggi og betri framkvæmd viðburðarins.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Hversu löngu fyrir almyrkvann ætti ég að koma til Vestfjarða?

Gestir eru hvattir til að koma til Vestfjarða að minnsta kosti degi fyrir almyrkvann, og fyrr ef það er mögulegt.

Vegalengdir innan svæðisins eru langar, vegaaðstæður geta verið breytilegar og búist er við miklum fjölda gesta. Tafir eru líklegar á sjálfum deginum, sérstaklega á vegum að fjölsóttum útsýnisstöðum.

Með því að koma fyrr gefst tími til að koma sér fyrir, kynna sér aðstæður og forðast óþarfa álag og akstur á síðustu stundu.

Ekki er mælt með dagsferð til Vestfjarða, sérstaklega fyrir þá sem koma langt að.

Það er jafn mikilvægt að dvelja áfram eftir myrkvann og að mæta snemma. Þegar viðburðinum lýkur geta margir lagt af stað á sama tíma, sem getur leitt til mikillar umferðar og hægs ferðatíma.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að skipuleggja komu og brottför fyrirfram má stuðla að öruggari umferð og auðvelda störf viðbragðsaðila.

Verður hægt að kaupa mat, eldsneyti og nauðsynjar?

Já. Matur, eldsneyti og grunnþjónusta verður í boði í þéttbýli á Vestfjörðum. Hins vegar má gera ráð fyrir mun meiri eftirspurn en venjulega, sérstaklega á degi myrkvans.

Vestfirðir samanstanda af litlum samfélögum með takmarkaða þjónustugetu. Verslanir, bensínstöðvar og veitingastaðir eru rekin á staðbundnum skala og gestir ættu ekki að gera ráð fyrir stórmörkuðum eða þjónustu allan sólarhringinn.

Gestir eru hvattir til að undirbúa sig vel.

Fyllið á eldsneyti eða hlaðið bílinn áður en farið er á útsýnisstað, takið með nægan mat og vatn fyrir nokkrar klukkustundir og tryggið að nauðsynlegar vistir séu meðferðis.

Safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir meðal annars vegna þess að þeir eru nær þjónustu á borð við verslanir, eldsneyti, veitingastaði og viðbragðsþjónustu.

Veitingastaðir og kaffihús geta orðið mjög annasöm og í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að bóka fyrirfram.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að taka með mat, vatn og nauðsynjar — og tryggja að eldsneyti eða hleðsla sé næg — má draga úr álagi á staðbundna þjónustu.

Hvar fæ ég áreiðanlegar veðurupplýsingar?

Áreiðanlegasta veðurupplýsingaveitan á Íslandi er Veðurstofa Íslands:

Skýjahuluspáin sýnir áætlaðar aðstæður yfir landinu og getur nýst við að meta hvar líklegra er að sjá til sólar. Hún er þó spá og getur breyst þegar nær dregur.

Gestir eru hvattir til að fylgjast reglulega með veðurspám dagana fyrir viðburðinn og aftur á sjálfum deginum.

Hafið í huga að veður getur verið mjög breytilegt milli staða á Vestfjörðum.

Veljið staðsetningu fyrirfram, fylgist með aðstæðum og forðist skyndiákvarðanir um akstur á síðustu stundu.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má tjalda utan skilgreindra tjaldsvæða?

Í flestum tilvikum, nei — gestir ættu að nota skilgreind tjaldsvæði.

Tjöldun utan tjaldsvæða á Íslandi er verulega takmörkuð. Gisting í húsbílum, hjólhýsum og sambærilegum ökutækjum er almennt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða með skýru leyfi landeiganda.

Takmarkaðar undantekningar geta átt við um lítil tjöld á afskekktum óbyggðum svæðum, en þær eru þröngar og eiga sjaldan við í nágrenni fjölsóttra staða, vega eða byggðar.

Í friðlýstum svæðum, á fjölsóttum ferðamannastöðum og nálægt vegum eða byggð er tjöldun utan skilgreindra svæða oft óheimil.

Ráðlegging

Gestir eru eindregið hvattir til að nota skilgreind tjaldsvæði.

Notkun tjaldsvæða hjálpar til við að:

  • vernda viðkvæma náttúru
  • tryggja aðgengi að salernum, sorplosun og grunnþjónustu
  • draga úr álagi á nærsamfélög og viðbragðsaðila
  • forðast sektir eða að þurfa að færa sig

Að gista á tjaldsvæði er öruggasti og fyrirsjáanlegasti kosturinn, sérstaklega á álagstímum eins og í kringum almyrkvann.

Tjaldsvæði á Vestfjörðum má finna hér

Má sofa í húsbíl eða campervan á bílastæði?

Nei — gisting í húsbílum eða campervan á bílastæðum er almennt ekki heimil á Íslandi nema svæðið sé sérstaklega ætlað til næturgistingar.

Gisting í húsbílum, ferðabílum og sambærilegum ökutækjum er yfirleitt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða þar sem næturgisting er sérstaklega leyfð. Flest bílastæði, áningarstaðir og ferðamannastaðir eru ekki ætluð til gistingar.

Gisting á bílastæðum getur skapað öryggisvandamál, hindrað aðgengi viðbragðsaðila og aukið álag á innviði, sérstaklega þegar margir eru á ferð.

Gestir eru eindregið hvattir til að nota skilgreind tjaldsvæði.
Tjaldsvæði bjóða upp á öruggari aðstöðu, aðgang að salernum og sorplosun og hjálpa til við að vernda náttúru og nærsamfélög.

Skipulagning fyrirfram og notkun tjaldsvæða er öruggasti og fyrirsjáanlegasti kosturinn á meðan á almyrkvanum stendur.

Tjaldsvæði á Vestfjörðum má finna hér

Eru varðeldar eða útieldun leyfð?

Opnir eldar eru almennt ekki leyfðir á Íslandi.

Kveikja elds utandyra er háð takmörkunum þar sem eldur getur fljótt skapað hættu og valdið skemmdum á viðkvæmum gróðri, sérstaklega í vindi eða þurrki. Ekki má kveikja eld þar sem hann getur skapað hættu fyrir fólk, eignir eða umhverfi.

Á flestum tjaldsvæðum og náttúrusvæðum eru opnir eldar bannaðir og gestum er ætlað að nota öruggari kosti, svo sem gashellur eða sérstaka eldunaraðstöðu þar sem hún er til staðar.

Það sem getur verið heimilt

  • að nota ferðagashellur eða búnað sem er ætlaður til útieldunar
  • að nota sérstaka eldunar- eða grillaðstöðu þar sem hún er til staðar
  • að fylgja tímabundnum brunatakmörkunum ef þær eru gefnar út

Það sem er ekki heimilt

  • að kveikja opinn eld á jörðu
  • að gera varðeld í náttúrunni eða nálægt gróðri
  • að nota eld þar sem hann getur skapað hættu

Gestir eru hvattir til að nota aðstöðu á tjaldsvæðum eða öruggan ferðabúnað og fylgja öllum leiðbeiningum á staðnum.

Þetta verndar náttúru, dregur úr eldhættu og auðveldar viðbragðsaðilum að sinna sínu hlutverki ef eitthvað kemur upp.

Eru aðgengilegir útsýnisstaðir fyrir fólk með skerta hreyfigetu?

Aðgengilegir útsýnisstaðir eru á mörgum skilgreindum safnstöðum í þéttbýli á Vestfjörðum.

Þessir staðir hafa verið valdir vegna þess að þar er betra aðgengi að þjónustu og aðstöðu, þar á meðal malbikuðum eða sléttum flötum, salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur. Margir staðanna eru við íþróttamiðstöðvar, félagsheimili eða opin svæði sem henta breiðum hópi gesta.

Aðgengileg bílastæði og þrepalaust aðgengi eru líklegri til að vera til staðar á þessum stöðum en á afskekktum útsýnisstöðum eða náttúrusvæðum.

Gestir með skerta hreyfigetu eru hvattir til að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli, þar sem þjónusta, viðbragð og aðstaða eru aðgengilegri.

Ef þörf er á sértækri aðstöðu er ráðlegt að skoða upplýsingar um einstaka staði fyrirfram og gera ráð fyrir auknum tíma við komu.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verða rafmagns- eða hleðsluaðstæður til staðar?

Já. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru í þéttbýli á Vestfjörðum og nokkrar hleðslustöðvar eru við helstu akstursleiðir um svæðið, sérstaklega við leið 60 og leið 61 á Vestfjarðaleiðinni.

Þessir staðir eru öruggasti kosturinn til að hlaða bíl áður en haldið er á útsýnisstað.

Á afskekktum stöðum og útsýnisstöðum er ekki hægt að gera ráð fyrir hleðsluaðstöðu og aðgengi að rafmagni er ekki tryggt utan þéttbýlis. Hleðslustöðvar geta einnig orðið mjög annasamar á meðan á almyrkvanum stendur.

Gestir á rafbílum eru hvattir til að skipuleggja sig vel.

Hlaðið bílinn áður en lagt er af stað, gerið ráð fyrir bið við hleðslustöðvar og treystið ekki á að hleðsluaðstaða sé við áfangastað.

Með því að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli er betra aðgengi að þjónustu, stuðningi og innviðum.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Hvar eru heilbrigðisþjónusta og sjúkrahús?

Heilbrigðisþjónusta er á Vestfjörðum, þar á meðal heilsugæslur í lykilbyggðakjörnum og sjúkrahús á Ísafirði.

Helstu heilbrigðisstaðir á meðan á almyrkvanum stendur eru:

  • Ísafjörður — Heilbrigðisstofnun og sjúkrahús
    Heimilisfang: Torfnesi, 400 Ísafjörður
  • Patreksfjörður — Heilsugæsla
    Heimilisfang: Stekkum 1, 450 Patreksfjörður

Aðrar heilsugæslur og heilbrigðisþjónusta eru einnig á Vestfjörðum og viðbragðsaðilar verða að störfum á svæðinu meðan á viðburðinum stendur.

Ef um neyðartilvik er að ræða skal hringja strax í 112.

Gestir eru hvattir til að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu og aðstoð er betra.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Er raunhæft að fara til Vestfjarða og til baka sama dag?

Fyrir flesta gesti er ekki mælt með því að fara til Vestfjarða og til baka sama dag.

Vegalengdir eru langar, vegir geta verið mjóir og hlykkjóttir og búist er við miklum fjölda gesta á svæðinu. Ferðatími getur orðið mun lengri en venjulega, sérstaklega fyrir og eftir almyrkvann.

Tíminn strax eftir myrkvann getur orðið mjög annasamur þar sem margir kunna að leggja af stað á sama tíma. Það getur valdið töfum og hægum akstri um vegakerfið.

Gestir eru hvattir til að koma til Vestfjarða að minnsta kosti degi fyrir viðburðinn og gera ráð fyrir að dvelja áfram á svæðinu eftir að myrkvanum lýkur.

Ef dagsferð er óhjákvæmileg þarf að gera ráð fyrir mun lengri ferðatíma en venjulega og vera undirbúin fyrir tafir.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verða aðrir útsýnisstaðir í boði ef einn staður fyllist?

Já. Það eru fleiri en einn skilgreindur útsýnis- og safnstaður á Vestfjörðum og gestum getur verið vísað á annan stað ef fyrsti kostur fyllist.

Rými er þó takmarkað á svæðinu og aðrir staðir geta einnig fyllst. Gestir ættu ekki að gera ráð fyrir að alltaf verði laust annars staðar.

Umferðarstýring, merkingar og fyrirmæli yfirvalda verða notuð til að stýra aðgengi og halda uppi öryggi þar sem þörf krefur.

Gestir eru hvattir til að ákveða aðalstað og varastað áður en lagt er af stað.

Ekki aka á milli staða í leit að lausu plássi, þar sem það getur skapað umferðartafir og dregið úr öryggi.

Safnstaðir í þéttbýli veita almennt besta aðgengið að bílastæðum, þjónustu og upplýsingum.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má fljúga dróna á meðan á almyrkvanum stendur?

Vinsamlegast fljúgið ekki drónum á meðan á almyrkvanum stendur.

Drónar geta truflað dýralíf, skapað hávaða og haft áhrif á upplifun annarra gesta. Drónar eru sérstaklega óvinsælir meðal margra sem fylgjast með almyrkva, enda koma margir til að upplifa viðburðinn í ró og einbeitingu.

Við Látrabjarg og á öðrum friðlýstum svæðum getur drónaflug verið takmarkað eða háð leyfi viðeigandi yfirvalda. Ef ætlunin er að nota dróna á Íslandi þarf að kynna sér reglur fyrirfram og fylgja takmörkunum sem gilda á hverjum stað.

Fyrir almyrkvann er einfaldasta ráðleggingin þessi:

Geymið drónann og njótið viðburðarins af jörðu niðri.