Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

The Factory listasýning í Djúpavík 2025

24. maí - 12. september

Upplýsingar um verð

Frítt inn
Verið velkomin á sýninguna The Factory: Himnadansarar sem stendur yfir frá 24 maí til 12 september 2025, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík.
 
The Factory 2025: Himnadansarar kannar norðurljósin í gegnum listaverk sem eru jafn himnesk og hverful og norðurljósin sjálf. Tíu listamenn nota vísindi og goðsagnir til þess að vísa veginn í gegnum gömlu síldarverksmiðjuna í Djúpavík, og vekja upp fyrirbæri sem sést annars ekki að sumri til – og sýna hið ósnertanlega sem tengir Jörð og Himinn.

“Aurora“ var rómversk gyðja dögunar og “boreas“ er gríska orðið yfir norðanvind. Himneskir litastormar hafa haldið mönnum í álagafjötrum í ótalmörg ár. Þau draga líkama, huga og sál inn í þoku myrkurs og ljóss — og kallað fram dulspeki, heilun, gleði, glundroða og ótta.

Andstæður laðast hvor að annarri, og það er sagt að myrkrið greiði leið sjálfsins, deyfi hömlur okkar og opni dyr að ‘öðru’. Þetta ‘annað’ getur kannski útskýrt af hverju norðurljósin auðvelda okkur að ferðast lengra en vísindalegur skilningur nær og inn í ævintýri.
 

Þannig býðst þér uppgjöf. Þú getur valið á milli þess að hverfa aftur inn í heim þekkingarleysis, eða dvelja við vísindalegar skýringar á alheiminum. Ljós og myrkur eru þó alltaf í húfi, og marka sér leið í gegnum sýninguna Himnadansarar, dansandi fjölda dansspora.

Opnunartímar
Opnun 24 maí, kl. 21.00.
24 maí - 12 september, opið daglega 10.00 -18.00
Aðgangur ókeypis
 
Listamenn
Anna Ólöf Jansdóttir (IS), Björt Sigfinnsdóttir (IS), Edda Karólína Ævarsdóttir (IS), Kathie Halfin (UKR/IL/US), Kathryn Cellerini, Moore (US), Lyse Fournier (FR), Signe Emdal and Kristian Emdal (DK), Sævar Helgi Bragason (IS), Tinna Ottessen (IS)
 
Sýningarstjóri
Emilie Dalum
 
Haldið af
Hótel Djúpavík
 
Styrktar- og samstarfsaðilar
Hótel Djúpavík
Uppbyggingarsjóður Vestfjarðar
Listaháskóli Íslands
Ljósmyndaskólinn
Náttúrubarnahátíð á Ströndum
 

Um The Factory
Stofnuð 2017, The Factory er árleg hópsýning í yrfigefnu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík á Ströndum. Með þvi að sameina staðbundna list, innsetningar og hljóð, brúar The Factory bilið á milli horfins sjávarútvegs og samtímalistar. Öll verkin eru innblásin af persónulegum áhrifum af Íslandi. Aðalmarkmið sýningarinnar er að móta vettvang skynjunar þar sem fortíð og nútíð mætast—stað til að anda og leyfa sér að vera til.

Fylgdu sýningunni hér
www.instagram.com/djupavikart/



GPS punktar

N65° 56' 39.209" W21° 33' 26.138"

Staðsetning

Djúpavík, Árneshreppur, Vestfirðir, Island