Í Selárdal, þar sem tíminn virðist líða hægar og verk Samúels Jónssonar birtast í landslaginu eins og minningar mótaðar í steypu, mætast ólíkar raddir í sameiginlegum hljómi. Listafólk sem starfar í Listvinnzlunni heldur sýningu á nýjum verkum á Listasafni Samúels í samstarfi við Listasafn Samúels og Listahátíð í Reykjavík.
Megináhersla sýningarinnar er skúlptúrar sem unnir eru í samtali við einstakan höggmyndagarð Samúels og verða hluti af garðinum. Samúel sótti fanga víða um heim en reisti verk sín í Selárdalnum. Þannig færði hann heiminn til sín í Selárdalinn.
Hér tekst listafólkið á við nýjan miðil, nýtt rými og nýjar aðstæður; list sem lifir undir berum himni og mótast af veðri og vindum. Samúel var á sínum tíma jaðarsettur í list sinni. Hann var sjálfmenntaður, óhefðbundinn og stóð utan meginstrauma. Sú reynsla endurómar í samtímanum þar eð fatlað listafólk er enn jaðarsett í listasenunni.
Í þessari sýningu myndast fallegur og kraftmikill ómur milli Samúels og listafólksins; samhljómur á milli samtímalistar og alþýðulistar, fortíðar og nútíðar, á milli Reykjavíkur og Selárdals, á milli miðju og jaðars og á milli ólíkra kynslóða.
Sýningin er virðing, viðbragð og áframhald; lifandi vitnisburður um að listin finnur sér farveg, jafnvel – og kannski einna helst – utan hins hefðbundna.
Nánari upplýsingar: https://www.listahatid.is/vidburdir/omur-listvinnzlan