Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Una Torfa í Edinborgarhúsinu

27. júní kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

7.990 kr.

Una Torfa spilar í Edinborgarhúsinu, ásamt fríðu föruneyti tónlistarfólks, laugardaginn 27. júní.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 og miðasala fer fram á tix.is:

Miðasala

Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.

Una hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin í tvígang, sem söngkona ársins 2022 og flytjandi ársins 2024. Fyrsta plata Unu „Flækt og týnd og einmana“ hlaut Kraumsverðlaunin 2022 og platan „Sundurlaus samtöl“ var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin poppplata ársins 2024 af Morgunblaðinu.

Nú mun hún ferðast um landið í sumar ásamt fríðu föruneyti frábærs tónlistarfólks og flytja tónlist sína. Með henni á sviði verða Hafsteinn Þráinsson gítarleikari, Tumi Torfason trompet- og bassaleikari og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir trommuleikari.