Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Þannig var það – Frumsýning hjá Kómedíuleikhúsinu

2. júlí kl. 20:00-21:20

Upplýsingar um verð

4500 kr.

Sumarsýning Kómedíuleikhússins er hinn áhrifamikli einleikur Þannig var það eftir norska Nóbelskáldið Jon Fosse.
Miðasölusími: 891 7025
Miðasala á netinu: midix.is
Miðaverð: 4.500.- kr.

Kómedíuleikhúsið kynnir stolt frumflutning á Íslandi á einleiknum "Þannig var það" eftir norska Nóbelsverðlaunahöfundinn Jon Fosse.

Verkið fjallar á áhrifaríkan hátt um einmanaleika, einangrun og hnignun mannlegra samskipta í samtímanum. Aðalpersónan, listamaður á dánarbeði, horfist í augu við eftirsjá yfir að hafa látið starfsframa ganga fyrir fjölskyldu og vinasamböndum.
Í gegnum einleikinn dregur Fosse fram hvernig hraðar samfélagsbreytingar og aukin tæknivæðing hafa grafið undan nánum tengslum fólks og aukið tilfinningu fyrir einmanaleika þrátt fyrir meiri tengimöguleika en nokkru sinni fyrr.

Með þessari uppfærslu vill Kómedíuleikhúsið vekja til umhugsunar um mikilvægi mannlegra tengsla og nærveru í nútímasamfélagi.

Athugið:
"Þannig var það" verður eingöngu sýnt í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal í sumar.
Nú er tækifærið til að vippa sér vestur og upplifa einstaka leiklistarupplifun!

Listamenn að verki:
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Höfundur: Jon Fosse
Tónlist: Unnur Birna Björnsdóttir
Búningar: Þ. Sunnefa Elfarsdóttir
Ljósameistari: Siguvald Ívar Helgason
Leikmynd og leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Uppfærslan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða