Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skálavík - Keflavík - gönguferð með Ferðafélagi Ísfirðinga

11. júlí kl. 10:00-19:00

Upplýsingar um verð

ókeypis

Skálavík – Bakkaskarð - Galtarviti --- 2-3 skór ---
Laugardaginn 11. júlí

Fararstjórn: Guðmundur Stefán Gíslason.
Mæting kl. 10.00 við Bónus á Ísafirði.
Gengið er frá Skálavík inn Bakkadal, tekin stefna upp í Bakkaskarð sem er snarbratt. Í mesta brattanum er vaður, til að auðvelda göngufólki gönguna upp skarðið. Þannig má fikra sig upp meðfram klettabelti í rólegheitum. Þegar upp í skarðið er komið blasir við Norðdalur þar sem leið liggur niður að Galtarvita við Keflavík. Þar verður áð og farið yfir sögu og töfra Galtarvita.

Vegalengd: alls um 12 km, göngutími: um það bil 8-10 klst., heildarhækkun: um 970 m.