Upplýsingar um verð
Frítt
Vetrarhjólaskemmtun Vestra – Laugardaginn 4. apríl 

Við hjá Vestra hvetjum alla fjallahjólara til að fjölmenna í skemmtilega uppákomu!
Dagskráin:
Kl. 16:00: Mæting á hjólaplanið við pumpubrautina. Rafhjólarar hjóla þaðan upp á Dal en hinir fá skutl upp að Seljalandsdalsskála.
Kl. 16:30: Hjólað frá Seljalandsdal og upp troðna braut alla leið á topp Sandfellslyftu.
Kl. 17:10: Sjálft fjallabrunið hefst þegar skíðasvæðið hefur lokað. Hjólað verður niður eftir Sneiðingnum að lyftuhúsi Miðfellslyftunnar og þaðan alla leið niður að Tungudalsskála.
Mikilvægt:
Fyrir hverja: Alla hjólara á fjallahjólum! Því fleiri, því skemmtilegra.
Börn: Verða að vera í fylgd forráðamanna og vera vanir fjallahjólarar.
Öryggi: Munið eftir viðeigandi hlífðarbúnaði.
Keppni: Hugsanlega verður boðið upp á tímatöku fyrir þá sem vilja mæla sig við klukkuna, en það er alls ekki nauðsynlegt – aðalatriðið er að hafa gaman saman.
Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessu hressa fjallabruni. Fylgist vel með hér á síðunni ef veðurspáin breytist.
Sjáumst hress í brekkunni! 