Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðafélag Ísfirðinga: gönguferð og kynning ferðaáætlunar

16. maí kl. 11:30-15:30
Umsjón: stjórn Ferðafélags Ísfirðinga. Sögumaður í göngu: Guðfinna Hreiðarsdóttir.
Mæting kl. 11.30 við endurvinnsluskápana á Nettóplaninu.
Strandlengja eyrarinnar gengin og saga hennar sögð. Endað í Safnahúsinu á Eyrartúni þar sem ferðaáætlun gönguársins 2026 verður kynnt í máli og myndum.
Boðið verður upp á veitingar með kynningunni.
Göngutími: u.þ.b tvær klukkustundir. Kynning: tvær klukkustundir.

GPS punktar

N66° 4' 24.790" W23° 7' 16.407"