Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hafið og handþrykk

2.- 3. maí
Hvað gerist þegar við fléttum saman vísindum og list?
Bókasafnið Ísafirði býður börnum og ungmennum í 5.-10. bekk grunnskóla á vísinda- og listasmiðju 2. og 3. maí.
 
Við ætlum að skoða nánasta umhverfi okkar - hafið og fjöruna - og fá innblástur til að skapa. Kræklingar og kuðungar, skeljar og sandormar, þari og þang verða að mynd og mynstri á pappír eða textíl. Þátttakendur fræðast um lífverur í fjörunni og læra grunnatriði í handþrykki og silkiprentun.
 
Þátttaka er ókeypis en pláss er takmarkað og skráning því nauðsynleg:
https://form.jotform.com/261042504516043
 
Leiðbeinendur: Cristian Gallo, Drífa Thoroddsen og Kristjana Einarsdóttir
 
Dagskrá smiðjunnar:
 
Laugardagur 2. maí kl. 14-16, mæting í fjöru í Arnardal.
Við förum í fjöru til að leita okkur að innblæstri. Með í för verða líffræðingar, Cristian og Kristjana, sem segja frá lífverum fjörunnar. Þátttakendur skoða sig um og taka sýni með sem þeir vilja vinna útfrá.
Mikilvægt að klæða sig eftir veðri, gott að vera í vatnsheldum skóm.
 
Sunnudagur 3. maí kl. 14-16, mæting í kjallara Safnahússins
Þátttakendur mæta í Safnahúsið þar sem þau skissa upp verkið sitt og handþrykkja það svo undir leiðsögn Drífu sem er fata- og textílhönnuður.
 
Verkefnið er hluti af Púkanum, barnamenningarhátíð Vestfjarða.