Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Albatross eftir Snævar Sölva Sölvason í sundlauginni á Flateyri -SUNDLAUGAMENNING

30. maí kl. 15:00-17:00

Upplýsingar um verð

Frítt

Albatross eftir Snævar Sölva Sölvason í sundlauginni á Flateyri
📍 Sundlaugin á Flateyri
📅 Laugardagurinn 30. maí
🕒 Kl. 15:00

Boðið verður upp á sérstaka sýningu á vestfirsku gamanmyndinni Albatross í Sundlauginni á Flateyri laugardaginn 30. maí kl. 15:00. Myndin er eftir Snævar Sölvason og sló aðsóknarmet í Ísafjarðarbíó þegar hún kom út árið 2015.

Snævar Sölvi Sölvason (f. 1985) er kvikmyndagerðarmaður og bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2024. Hann útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Íslands árið 2014 og hefur síðan leikstýrt og skrifað fjórar kvikmyndir auk fjölda annarra verkefna. Nýjasta verk hans, Ljósvíkingar, var frumsýnt árið 2024.

Google Calendar - Event details

 

Verkefnið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO.