Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumartónleikaröð Ástu: Sæbólskirkja á Ingjaldssandi

1. ágúst kl. 15:30-17:00

Upplýsingar um verð

2.500.-
Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.
 
Lokatónleikarnir verða haldnir á verslunarmannahelginni í Sæbólskirkju á Ingjaldssandi.
 
Ingjaldssandur er einn af þessum stöðum í heiminum sem mér finnst erfitt að lýsa með orðum. Fegurðin er svo mikil og orkan er svo sterk.
 
Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Ég hlakka til að halda mína fyrstu tónleika á Ingjaldssandi.
 
Sæbólskirkja er rétt tæplega 100 ára gömul, hönnuð af Guðjóni Samúelssyni og var ein af hans fyrstu kirkjuteikningum.
 

Tónleikaröðin er styrkt af Ísafjarðarbæ.

Ásta er söngvaskáld og víóluleikari, búsett á Ísafirði. Hún er klassískt menntuð frá Royal Danish Academy of Music í Kaupmannahöfn og hefur meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á ferli sínum hefur hún unnið til margvíslegra verðlauna, nú síðast Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína Blokkarbarn, sem þykir ein eftirtektarverðasta útgáfa síðasta árs hér á landi.

GPS punktar

N66° 3' 26.483" W23° 42' 13.051"

Staðsetning

Sæbólskirkja, Ingjaldssandi