Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumartónleikaröð Ástu: Hraunskirkja í Dýrafirði

11. júlí kl. 20:00-21:30

Upplýsingar um verð

2.500.-
Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.
 
Aðrir tónleikar raðarinnar verða haldnir í hinni afskekktu Hraunskirkju í Keldudal í Dýrafirði.
 
Keldudalur var eitt sinn iðandi af lífi en fór í eyði árið 1987. Um tíma stóð til að rífa kirkjuna, en Þjóðminjasafn Íslands sá til þess að frekar yrði ráðist í viðgerðir á henni. Kirkjan er núna í vörslu safnsins og er yfirleitt lokuð almenningi - þannig að áhugafólk um eyðidali og sveitakirkjur (eins og ég) ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.
 
Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Það er lengi búið að vera draumur hjá mér að spila í þessari fallegu kirkju sem er svo rík af sögu þannig að ég hlakka mikið til.
 
ATH! Hraunskirkja í Keldudal er í um 15 km akstursfjarlægð frá Þingeyri, út Dýrafjörðinn (sunnanmegin í firðinum). Það er hvorki salerni, rennandi vatn, símasamband, netsamband né rafmagn á staðnum.
 

Tónleikaröðin er styrkt af Ísafjarðarbæ.

Ásta er söngvaskáld og víóluleikari, búsett á Ísafirði. Hún er klassískt menntuð frá Royal Danish Academy of Music í Kaupmannahöfn og hefur meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á ferli sínum hefur hún unnið til margvíslegra verðlauna, nú síðast Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína Blokkarbarn, sem þykir ein eftirtektarverðasta útgáfa síðasta árs hér á landi.

GPS punktar

N65° 54' 25.127" W23° 45' 6.317"

Staðsetning

Hraunskirkja, Dýrafirði