Upplýsingar um verð
0 kr.
Líkt og á síðasta ári verða hátíðahöld á Ísafirði á þjóðhátíðardaginn mun minni í sniðum en venjulega. Dagskráin miðar sem fyrr að því að stórir hópar safnist ekki saman á einum stað en íbúar eru þó hvattir til að draga fána að húni, fara í sparifötin og gera sér glaðan dag.
Dagskrá á Ísafirði
11:00 Hátíðarmessa í Ísafjarðarkirkju
13:00-15:00 Ratleikur í boði Körfuknattleiksdeildar Vestra. Upplýsingar á söluborði við Silfurtorg.
14:00 Hátíðardagskrá á Silfurtorgi
- Lúðrasveit leikur fyrir gesti
- Hátíðarræða
- Hátíðarkór, stjórnandi Tuuli Rähni
- Ávarp fjallkonu
14:00 Barnaleikrit á sjúkrahústúninu
- Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Dimmalimm sem er án efa eitt ástsælasta ævintýri þjóðarinnar. Sagan er eftir listamanninn Mugg frá Bíldudal. Ævintýrið fjallar um prinsessuna Dimmalimm sem eignast góðan vin sem er stór og fallegur svanur. En eins og í öllum góðum sögum þá gerist eitthvað óvænt og ævintýralegt.
Þá verður Körfuknattleiksdeild Vestra með söluborð við Silfurtorg og uppi á sjúkrahústúni.