Price description
Menningarmiðstöðin Edinborg og Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar bjóða upp á sex skipta listasmiðju fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í samstarfi við Vekjandi listmeðferð.
Skráning fer fram í gegnum vefform.
Smiðjurnar fara fram á mánudögum kl. 16:00 frá 9. mars til 27. apríl (hlé í dymbilviku og á annan í páskum). Fyrstu þrjú skiptin fara fram 9. 16. og 23. mars en seinni þrjú skptin 13. 20. og 27. apríl.
Í listasmiðjunni fá börn tækifæri til að kanna efni, áferðir og eigin sköpunarkraft í öruggu og hvetjandi umhverfi. Áherslan er á ferlið frekar en lokaafurðina.
Listasmiðjan:
- býður upp á leik með liti og efni á frjálsan og skapandi hátt
- styður við þroska sjálfsvitundar, seiglu, sköpunarkrafts og tilfinningalæsis barna
Hver tími byggir á þema sem virkjar sköpunarkraftinn og býður börnunum að vinna á sínum eigin forsendum, án pressu og kröfu um að „gera rétt“.
Staðsetning: Edinborgarhúsið 2. hæð
Hvenær: Mánudagar kl 16
Tími: 1 klst á viku
Fjöldi: Hámark 8 börn í hóp
Verð: 26.000 - allt efni innifalið
Leiðbeinendur eru Sanda Borg Bjarnadóttir, listmeðferðarfræðingur og Þorgils Óttar Erlingsson, myndlistamaður.