Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Teiknum AFTUR saman – Komdu og taktu þátt í myndalottói

June 11 at 13:00-15:00

Teiknum aftur saman – Komdu og taktu þátt í Myndalottói!
Miðvikudaginn 11 júní, kl. 13–15
Safnahúsið við Eyrartún

Athugið: Þann 11. júní er jafnframt síðasti dagurinn sem hægt er að skila mynd í lottóið

Í tilefni 100 ára afmælis Safnahússins bjóðum við börnum og ungmennum að taka þátt í skapandi teiknivinnu undir leiðsögn – og skila inn mynd í Myndalottó! Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði og öll börn 18 ára og yngri geta tekið þátt.

Við bjóðum upp á efnivið, hugmyndir og skemmtilega stemningu þar sem börn og ungmenni teikna mynd sem tengist Safnahúsinu. Allar myndir verða sýndar á afmælisdeginum, 17. júní, og þátttakendur eiga möguleika á að vinna skemmtilega vinninga í happdrætti! Öll börn fá þátttökuverðlaun.

Rannveig Jónsdóttir, starfsmaður Listasafns Ísafjarðar, leiðbeinir við teiknivinnuna og Soffía Rún Pálsdóttir verður henni innan handar.

Öll börn og ungmenni 18 ára og yngri velkomin
Við útvegum blöð og liti – þú kemur með hugmyndirnar
Skemmtilegir vinningar og þátttökuverðlaun í boði
Allar myndir verða sýndar þann 17. júní

Viðburðurinn er ókeypis og allir velkomnir!