Aðstandendur væntanlegra Hollvinasamtaka Samkomuhússins á Flateyri boða til hátíðlegs stofnfundar félagsins.
Félagasamtök á Flateyri og hverfaráð Önundarfjarðar hafa unnið hörðum höndum að því síðustu mánuði að bjarga Samkomuhúsinu frá því að vera selt til einkaaðila. Haldnir hafa verið tveir fundir með íbúum þar sem skýrt hefur komið fram að Flateyringar og aðrir velunnarar bera hag samkomuhússins síns fyrir brjósti. Nú hefur Ísafjarðarbær boðið óstofnuðum hollvinasamtökum að eignast húsið sér að kostnaðarlausu og hafa boðist til að gera samning um aðkomu að rekstri hússins.
Því boðum við til hátíðlegs stofnfundar félagsins og fögnum jafnframt þeim frábæra anda sem ríkir á Flateyri, hristum saman hópinn og fögnum að sjálfsögðu þjóðhátíðardeginum í leiðinni!�Pálínuboð þar sem öll koma með eitthvað á hlaðborð, vinsamlegast takið með eigin disk og hnífapör (við eigum nefnilega eftir að uppfæra borðbúnaðinn í húsinu - það kemur að því!)
Í kjölfar stofnunar munu öll áhugasöm geta gerst meðlimir í félaginu eða bakhjarlar þess.
Hæhó jibbí jei, sjáumst í Samkomuhúsinu 17. júní!