Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Páskafjallahjól Vestra

April 4 at 17:00-18:30

Price description

Frítt

Páskahjólaskemmtun hjá Vestra!

Við hjá Vestra hvetjum alla fjallahjólara til að fjölmenna í skemmtilega uppákomu laugardaginn 4. apríl.

Planið er að hópa sig saman við skálann á Seljalandsdal og halda þaðan upp á topp í Sandfellslyftu. Þar hefst fjörið þegar við hjólum saman niður skíðabrautina, alla leið niður í Tungudalsskála.

Helstu upplýsingar:
Tímasetning: Við stefnum á að fara af stað eftir lokun skíðasvæðisins (háð veðri).

Fyrir hverja: Alla hjólara á fjallahjólum! Því fleiri því skemmtilegra.

Keppni: Hugsanlega verðurboðið upp á tímatöku fyrir þá sem vilja mæla sig við klukkuna, en það er alls ekki nauðsynlegt – aðalatriðið er að hafa gaman saman.

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessu hressa fjallabruni.

Sjáumst hress í brekkunni!