Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Franska kvikmyndahátíðin á Ísafirði 2026

March13 - 14

Franska kvikmyndahátíðin verður haldin á Ísafirði dagana 13. og 14. mars. Sýndar verða þrjár myndir að þessu sinni. Seldir verða hátíðarpassar með góðum afslætti sem gilda á allar myndirnar á hátíðinni. Einnig verður hægt að kaupa miða á stakar sýningar.

Franska kvikmyndahátíðin er haldin í samstarfi við Ísafjarðarbíó, Franska sendiráðið, Alliance Francaise og Bíó Paradís.

Franski sendiherrann á Íslandi Guillaume Bazard opnar hátíðina kl. 19:30 föstudaginn 13. mars og býður gestum upp á léttar veitingar. Einnig verður boðið uppá smárétti frá French Touch Café í Bolungarvík.
Kl. 16 laugardaginn 14. mars heldur Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur á Ísafirði erindi um franska kvikmyndagerð og boðið verður uppá kaffi og smákökur frá French Touch Café í Bolungarvík.

Facebook-viðburður