Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Fræðsla um netöryggi, stafræna velferð og farsæld barna

March 19 at 17:00-18:00

Heimili og skóli bjóða upp á fræðslu um netöryggi, stafræna velferð og farsæld barna í Grunnskólanum á Ísafirði fimmtudaginn 19. mars kl. 17.

Netöryggi, stafræn velferð og farsæld – Fræðsla fyrir foreldra og öll þau sem koma að degi barna

Við lifum á tímum þar sem netið er stór hluti af lífi barna og ungmenna – með ótal tækifærum en líka áskorunum. Þessi fræðsla er sérstaklega sniðin að foreldrum sem vilja styðja börnin sín í að vaxa og dafna í stafrænum heimi.

Á fundinum fá foreldrar fræðslu, hagnýt verkfæri og tækifæri til að styrkja samtal og samvinnu innan fjölskyldunnar.

Sigurjón Már Fox GunnarssonStafrænt uppeldi
Hvernig getum við sem foreldrar verið leiðandi, styðjandi og skýr í stafrænu uppeldi? Fjallað verður um ábyrgð, mörk, hættur á netinu og hvernig við byggjum upp traust í kringum netnotkun barna.

Anna Laufey StefánsdóttirStafræn velferð
Hvað þýðir stafræn velferð í daglegu lífi barna og fjölskyldna? Rætt verður um jafnvægi, skjátíma, andlega líðan og hvernig við styðjum við heilbrigt samband við tæknina.

Dagbjört HarðardóttirSamvinna barnanna vegna
Hvernig getum við foreldrar unnið saman að farsæld barna okkar? Fjallað verður um mikilvægi samstöðu, skýrra skilaboða og sameiginlegrar ábyrgðar í skóla- og foreldrasamfélaginu.

Við tengjum saman netöryggi, stafræna velferð og Farsældarsáttmálann með það að markmiði að styrkja foreldra í hlutverki sínu – með þekkingu, öryggi og uppbyggilegu samtali að leiðarljósi.

Fræðslan fer fram í Grunnskólanum á Ísafirði klukkan 17:00 þann 19. mars og aðgangur er ókeypis.

Við hlökkum til að eiga með ykkur hlýja og uppbyggjandi stund þar sem við styðjum hvert annað í mikilvægu hlutverki foreldra í stafrænum heimi.

Facebook-viðburður