Velkomin á búningaskiptimarkað í Edinborgarhúsinu laugardaginn 14. febrúar kl. 11-13.
Á markaðnum verður hægt að skiptast á búningum fyrir maskadaginn (og öskudaginn).
Nú er tækifæri til að hreinsa úr búningakistum heimilisins og koma með búninga sem eru orðnir of litlir eða eru ekki lengur í notkun og finna nýja í staðinn.
Ekki er þörf á að koma með búninga til þess að fá búning á markaðnum.
Hægt er að koma með búninga og skilja þá eftir á skrifstofu Edinborgarhússins, annarri hæð, dagana fyrir viðburðinn.