Dagskrá hátíðahalda á þjóðhátíðardaginn á Ísafirði. Safnahúsið á Ísafirði fagnar 100 ára afmæli þann 17. júní og verður sérstök hátíðardagskrá í húsinu af því tilefni.
11:00 Tónlistarmessa í Ísafjarðarkirkju
12:00-13:00 Grímusmiðja Kómedíuleikhússins
13:15 Skrúðganga frá Silfurtorgi upp á Eyrartún
13:30-16:00 Ratleikur körfuknattleiksdeildar Vestra, byrjað við sölutjöldin á Eyrartúni
13:30-16:00 Hátíðardagskrá á Eyrartúni
- Lúðrasveitin leikur fjörug lög
- Hátíðarræða
- Hátíðarkór
- Ávarp fjallkonu
- Hoppukastalar, andlitsmálun, karamelluregn, börnum boðið á hestbak, sölutjöld körfuknattleiksdeildar Vestra.
14:30-17:00 Opið hús í tilefni 100 ára afmælis Safnahússins á Ísafirði
- Íbúum Ísafjarðarbæjar og öðrum gestum er boðið upp á afmælisköku og kaffi í tilefni dagsins auk þess sem tækifæri gefst til skoða alla króka og kima hússins eftir gagngerar endurbætur, meðal annars barnadeild Bókasafnsins sem opnar þennan dag, fallega endurbætt.
- Í hinum ýmsu vistaverum verða sýndar gamlar ljósmyndir sem veita innsýn í fyrra hlutverk hússins sem sjúkrahús.
- Þátttökuverk í myndalottó Listasafns Ísafjarðar verða sýnd á gangi og fimm verðlaunaverk dregin út, eitt úr hverjum aldurshópi, auk þess sem þátttökuverðlaun verða afhent.
- Í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar opnar Elín Hansdóttir sýninguna BOOK SPACE.
16:00 Parallel Dimensions – Sýningaropnun Karoliina Hellberg og Josefina Nelimarkka í Gallerí Úthverfu.
17:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli, í samstarfi við tónlistarhátíðina Við Djúpið.
20:00 Við Djúpið — Opnunarhátíð
- Ljós og stilla: Finnski píanóleikarinn Helga Karen
Nánari upplýsingar
Vakin er athygli á dagskrá á Hrafnseyri 17. júní. Nánar á www.hrafnseyri.is.