Dagana 4.–8. maí munu ferðatæknifyrirtækin Godo og Keeps taka höndum saman og standa fyrir fræðsluviðburðum víðs vegar um landið fyrir aðila í ferðaþjónustu.
Þema viðburðanna er sala og sýnileiki, með áherslu á einfaldar og hagnýtar leiðir til að ná betri árangri.
Á fundunum munum við meðal annars fara yfir:
- hvernig hægt er að auka beinar bókanir
- hvernig þú getur styrkt sýnileika þinn og náð til fleiri viðskiptavina
- hvað er að skila árangri í dag hjá fyrirtækjum í greininni
Fundirnir eru sérstaklega ætlaðir eigendum og rekstraraðilum í ferðaþjónustu sem vilja fá hugmyndir, ráð og innsýn sem nýtast í daglegum rekstri.
Hver fundur er um 1,5 klukkustundir:
- 30–40 mínútur af erindum
- opnar umræður, spurningar og tengslamyndun í lokin
Markmiðið er einfalt: að þú farir heim með að minnsta kosti eina hugmynd sem þú getur nýtt strax.