Price description
4.900.- kr
Ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar, Sigrún Hjálmtýsdóttir, eða Diddú, verður með tónleika í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði. Tónleikarnir verða óvænt ferðalag á vængjum söngsins þar sem komið verður við í ýmsum löndum tónbókmenntanna, frá norðri til suðurs og svo austri og vestur úr.
Meðleikari verður galdrapíanistinn Davíð Þór Jónsson.
Þetta verða afar fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar fyrir alla aldurshópa.