Upplýsingar um verð
The Factory listasýning 2023
Kynjalegar gáttir
Verið velkomin á sýninguna The Factory - Kynjalegar gáttir, sem stendur yfir frá 10 júní til 15 september, 2023, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík.
Opið daglega 10.00 -18.00
Aðgangur ókeypis
Áttunda útgáfan af The Factory, Kynjalegar gáttir, endurómar leiðina í gegnum gap, tíma og heima. Með orðið “heiðni” að leiðarljósi hafa listamennirnir 13 skapað næmnar innsetningar sem rísa sjálfstæðar en um leið samsvarast —næstum trúarlega— í undarlegri nánd við veðraða steypuna. Það er huggun í þessum dulrænu aðstæðum: um leið og við ferðumst á milli verka sem eiga rætur í trumbuslætti seiðmanna, höfuðkúpu villisvíns, og norrænni goðafræði, þá erum við minnt á að lífið er aldrei línulegt. Lífið er fléttað saman af óreiðu, guðdómleika, grjóti, plöntum, dýrum, rotnun, vexti, og fæðingu. Með þessa mynd í huga, staldrið við, og sjáið fyrir ykkur fjölgyðis átrúnað heiðninnar og sýn hennar á samgildingu manna og nátturu sem undirstöðu sýningarinnar.
Listaverkin eru staðsett: Mjölganginum, Lagernum, Færibandsganginum, Lýsistanknum og utandyra, hinu megin við brúnna.
Listamenn
Alda Ægisdóttir (IS)
Clara Holt (IT)
Ferrelyte (Kamile Pikelyte og Victoria Björk Ferrell) (LI / IS)
Florence Giroux Gravel (CA)
Gudrita Lape (IS)
Heimir Hlöðversson (IS)
Jana Rinchenbachová (CZ)
Jette Dalsgaard (DK)
Linnéa Falck (SE)
Maria-Carmela Raso (CA)
Nína Óskarsdóttir (IS)
Sofie Hermansen Eriksdatter (DK)
Haldið af Hótel Djúpavík
Sýningarstjórn: Emilie Dalum
facebook.com/thefactorydjupavik/
instagram.com/djupavikart/
Styrktaraðilar: Hótel Djúpavík, Vestfjarðastofa / Sóknaráætlun Vestfjarða og Orkubú Vestfjarða.
Takk: Hótel Djúpavík, allir listamenn, Björgvin Agnarsson, Camilla Cerioni, Daria Testoedova, Gabe Dunsmith, Iða Brá Ingadóttir, Listaháskóli Íslands og Þórunn Þorsteinsdóttir.
Listaverk á ljósmynd unnið af Heimir Hlöðversson, Lífsneistinn