Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

The Factory listasýning 2024

1. júní - 20. september

Upplýsingar um verð

Frítt inn

The Factory 2024: Hendur á hreyfingu, ofin framtíð opnar 1 júní kl. 21.00 í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík á ströndum.

The Factory er árleg listasýning. Með þvi að sameina staðbundna list, innsetningar og hljóð, brúar The Factory bilið á milli horfins sjávarútvegs og samtímalistar. Öll verkin eru innblásin af persónulegum áhrifum af Íslandi. Aðalmarkmið sýningarinnar er að móta rými til að anda og leyfa sér að vera til.

Daglega opin 10:00 - 18:00

Listamennirnir á sýningunni The Factory 2024: Hendur á hreyfingu, ofin framtíð, hafa þvert á kynslóðir, hæfileikasvið og þjóðerni, dregið innblástur frá hafinu, sjálfbærum möguleikum náttúrunnar og viðhorfum til handverks.

Handverk lýsir þeim hæfileikum sem fólk þarf að búa yfir til þess að skapa eitthvað frá grunni. Afrakstur handverks getur dregið fram eiginleika efniviðarins, mikilvægi náttúrunnar sem innblásturs og verðmæti einfaldleikans, notagildis og fegurðar. Endurtekningin sem handverk krefst gerir það að verkum að hendur og hugur geta aldrei reikað of langt frá hvort öðru. Þegar hönd, hugur og hreyfing mætast verður sköpunin til. Sköpunin hleypir líkamleika og flæði aftur inn í meðvitundina og hversdagslífið, og á sama tíma hjálpar hún okkur að tengjast þekkingu og lifnaðarháttum fyrri tíma.

Seglagerð, netagerð, kaðlaggerð og áttavitasmíði eru allt dæmi um störf unnin af sérhæfðu handverksfólki. Gamla síldarverksmiðjan, söguleg byggingarlist hennar og handgerð smíði er þess vegna upplagður bakgrunnur fyrir þema ársins. Listaverkin kalla fram fegurð og segja sögur, og bjóða á sama tíma upp á tækifæri til þess að hægja á ferðinni og hampa sköpunarferlinu. Þannig getur handverk, það að vinna með höndunum og sú hæfni sem byggir bæði á nútímaþekkingu sem og verkviti fortíðinnar, verið undirstaða fyrir vellíðan, sálfræðilega endurheimt og heilandi framtíð.

Listamenn:
Jonna Jónborg Sigurðardóttir (IS), Kadri Liis Rääk (EST), Karni & Saul (UK), Kathy Clark (US/IS), Katrín Þorvaldsdóttir (IS), Laurita Siles (Basque Country) with Elías Knörr (IS) and Edurne González Ibáñez (Basque Country), Nikki Ummel (US), Penelope Payne (UK), Raimonda Sereikaitė - Kiziria (LI/IS), Wanxin Qu (CH).

 
Sýningarstjóri:
Emilie Dalum
 
Haldið af Hótel Djúpavík
Styrktaraðilar Hótel Djúpavík, Myndlistarsjóður, Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Orkubú Vestfjarða
 
Námskeið og samtal við leikstjóra:
Verksmiðjan heldur, í samstarfi við Baskavinafélag Íslands, námskeið um hljóðfæragerð (e. luthiery) með leiðsögn á vegum Intelligent Instruments Lab við Háskóla Íslands. Námskeiðið verður haldið helgina 6.-9. júní, og auk námskeiðsins verða haldin pop-up sýning og tónleikar. Námskeiðið hefst um miðjan dag. Í seinni hluta júlí mun sýningargestum svo standa til boða samtal við Karni & Saul, leikstjóra stuttmyndarinnar Wild Summon.

Staðsetning

Djúpavík, Árneshreppur, Iceland