Upplýsingar um verð
10.000 kr
Tónlistarhátíðin Snæfjallahátíð verður haldin í fyrsta sinn á Snæfjallaströnd í norðanverðu Ísafjarðadjúpi á jónsmessuhelginni. Hátíðin fer að mestu fram í heimahúsum Snjáfjallaseturs, Dalbæ, ásamt Unaðsdalskirkju og utandyra ef veður leyfir. Fram koma ;
- Kira Kira
- Kraftgalli
- Línus Orri
- Dúllurnar
- Súrillur & Dókur
- Venus Volcanism
- Ari Árelíus
- Hermigervill
- Kenichi & The Sun
Hátíðin er í samstarfi Snjáfjallaseturs og Steinshúss og nýtur framlags frá Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.
Gisting:
Þetta verður tjaldútilega enda ekkert gistiheimili eða slíkt á svæðinu og verður tjald-gjald innifalið í miðaverðinu.

Hvernig kemst ég á svæðið:
Hátíðin er haldin langt frá mannabyggðum og mikilvægt er að fylla bílinn af eldsneyti á Hólmavík, til að komast aftur til baka.

Matur:
Ein heit máltíð verður í boði á dag, innifalið í miðaverði. Að öðru leyti er mikilvægt að hafa með sér nesti og jafnvel prímusa og áhöld til að útbúa sér mat. Engin verslun er á svæðinu og því milvægt að byrgja sig vel upp áður en komið er á svæðið, síðasti séns er á Hólmavík.

Klæði:
Þó komið sé sumar þá er hátíðin haldin ansi norðanlega og því er talsvert kaldara (ferskara) veður en á Suðurlandi. Takið því með hlý föt og regnföt. Gott er að skoða veðurspá áður en haldið er af stað.

Verð fyrir helgarpassa: 10.000 kr.