Upplýsingar um verð
4000 krónur
Kæri tónlistarunnandi,
Það verður aldeilis drama og fjör á næstu tónleikum félagsins fimmtudaginn 11.11.2021 kl.20:00 í Hömrum!
Kristinn Sigmundsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Oddur Arnþór Jónsson, Gissur Páll Gissurarson, Sigrún Pálmadóttir og Guðrún Dalía flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum eftir Beethoven, Donizetti, Gounod, Mozart, Nicolai, Saint-Saëns og Verdi.
Hægt er að kaupa miða með því að smella hér.
Verið hjartanlega velkomin