Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Námskeið Tungumálatöfra

5.-10. ágúst

Upplýsingar um verð

29.500

Tungumálatöfrar er námskeið með áherslu á íslenskuörvun í gegnum listsköpun og leik fyrir börn. Boðið er upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir. Listsköpun og leikur eru höfuðáherslan í kennslunni og unnið markvisst að því að börnunum líði sem best í eigin skinni og öðlist sjálfstraust til að tjá sig á íslensku og styrki íslenskukunnáttu sína og sjálfsmynd með tónlistarsköpun, listaverkagerð og hreyfingu. Allt frá upphafi hefur tónlist leikið stórt hlutverk á námskeiðinu og myndlistarsköpun einnig átt sinn fasta sess. Í ár er einnig boðið upp á skapandi útivist.

Námskeið fer fram 5.-10. ágúst og lýkur á sunnudeginum með töfragöngu og hátíð þar sem forráðamenn og vinir eru velkomin að sjá afrakstur námskeiðsins. Kennt er frá 10-14.

Í boði eru tvö námskeið: Tungumálatöfrar fyrir 5–9 ára börn sem fram fer í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri. Töfraútivist fyrir 10-14 ára börn kennt í nágrenni Flateyrar.

Námskeiðið er sniðið að þörfum fjöltyngdra barna, en er opið fyrir öll börn.

GPS punktar

N66° 2' 49.557" W23° 30' 47.208"

Staðsetning

Flateyri

Sími