Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Minningarathöfn - 40 ár frá snjóflóðum

22. janúar kl. 14:00-17:00

Minningarathöfn um þau sem létust í krapaflóðunum sem féllu á Patreksfjörð 1983 verður haldin sunnudaginn 22. janúar næstkomandi í tilefni þess að þá verða 40 ár liðin frá atburðinum.

14:00 – Minningarstund í Patreksfjarðarkirkju. Séra Kristján Arason heldur minningarstund að viðstöddum Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi. Tónlistarfólk af svæðinu flytur tónlistaratriði.

14:40 – Gengið að minnisvarðanum. Viðbragðsaðilar verða í broddi fylkingar og lagður verður blómasveigur og kerti við minnisvarðann.

15:15 – Minningarathöfn í anddyri félagsheimili Patreksfjarðar. Til máls taka:
– Úlfar Thoroddssen, fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps.
– Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
– Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Að lokinni dagskrá býður slysavarnardeildin Unnur upp á kaffi og veitingar.

Öll eru hjartanlega velkomin.

GPS punktar

N65° 35' 47.192" W23° 59' 18.985"

Staðsetning

Patreksfjarðarkirkja, Aðalstræti, Patreksfjörður, Vesturbyggð, Westfjords, 450, Iceland

Sími