Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sundballettinn Eilífðin á Suðureyri

4. júní kl. 17:00-18:00

Upplýsingar um verð

Tíminn kostar ekkert, en borgað er venjulegt gjald ofan í laugina.
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Sundballettinn Eilífðin eru systurnar Margrét Erla Maack og Vigdís Perla Maack sem létu sundballettdrauma sína rætast og hafa verið með tíma reglulega í samstarfi við Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ. Þér er boðið í sundballetttíma í Sundlauginni á Suðureyri!
Ferðalagið hlaut styrk úr sundlaugamenningarpotti Þjóðminjasafnsins.
Tíminn sjálfur er ókeypis utan þess að þátttakendur greiði ofan í laug. Um er að ræða þátttökutíma, ekki sýningu.
Við erum Sundballettinn Eilífðin, og þið eruð Sundballettinn Eilífðin.
Tíminn er öllum opinn - svo lengi sem fólk er synt og nær til botns. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta.