Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannréttinaskrifstofa með opinn fund

21.-22. september

Mannréttindastofnun Íslands kynnir starfsemi sína á Ísafirði

Mannréttindastofnun Íslands verður á Ísafirði mánudaginn 21. september og þriðjudaginn 22. september til að kynna starfsemi sína.

Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi og stuðla að því að bæði opinberir aðilar og einkaaðilar virði mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins.

Réttindagæsla fatlaðs fólks heyrir nú undir Mannréttindastofnun Íslands og verður sérstök áhersla lögð á það hlutverk í kynningunni. Fatlað fólk, aðstandendur þess og aðrir áhugasamir eru því sérstaklega hvattir til að mæta.

📅 Mánudagurinn 21. september 
📍 Salur á 4. hæð í stjórnsýsluhúsi Ísafjarðarbæjar
🕒 Tími auglýstur síðar