Litli leikklúbburinn sýnir sprenghlægilega gamanleikritið Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar og staðfærslu Eiríks Arnar Norðdahl.
Jón Borgar Eskildsen stendur á barmi stærsta tækifæris starfsferilsins: Hann á að flytja Hippókratesarfyrirlesturinn og sjálf yfirlæknisstaða Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða er undir. Í salnum eru allir sem máli skipta, ráðherrar, taugalæknar og fjáðir frumkvöðlar, auk eiginkonunnar auðvitað. En augnabliki áður en Jón Borgar á að stíga á svið dúkkar upp gömul vinkona sem hann hefur ekki séð síðan þau tóku „dálítið skrens“ bakvið svæfingavélina hér um árið og flytur honum óvæntar fréttir sem setja öll hans framtíðarplön í uppnám.
Hér er allt á suðupunkti – misskilningur, leyndarmál og ótrúlegar aðstæður sem fara hratt úr böndunum. Hraðinn er mikill, flækjurnar margar og hláturinn aldrei langt undan. Klassískur Cooney-farsi eins og hann gerist bestur!
Sýningar
Fimmtudagur 5. febrúar kl. 20:00
Föstudagur 6. febrúar kl. 20:00
Sunnudagur 8. febrúar kl. 20:00
Miðvikudagur 11. febrúar kl. 20:00
Föstudagur 13. febrúar kl. 20:00
Sunnudagur 15. febrúar kl. 20:00
Fimmtudagur 19. febrúar kl. 20:00