Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Guðni Th. kynnir: Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971–1974

24. október kl. 16:00-18:00

Guðni Th. Jóhannesson, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, var að senda frá sér bókina „Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971-1974“. Í tilefni þess heimsækir hann Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað og kynnir bókina. Viðburðurinn fer fram í Turnhúsinu á Veturnóttum eða þann 24. október kl 16. 

Í bókinni er sagt frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.