Í tilefni af 100 ára afmæli Safnahússins verður blásið til málþings sem ber titilinn Gömul hús á Ísafirði - arfleifð og áskoranir. Dagskráin er eftirfarandi:
13:30 Pétur H. Ármannsson: Sjúkrahússbyggingar Guðjóns Samúelssonar
14:00 Andrea Harðardóttir: Ísafjörður - andblær áranna í kringum 1925
14:30 Kaffihlé
14:40 Theresa Himmer: Tímalög
15:00 Elísabet Gunnarsdóttir: Umgjörðin um lífið sjálft
15:20 Halla Mia Ólafsdóttir: Það sem ég vildi að ég vissi - sögur af endurbótum á Messíönuhúsi og Hrannargötu 6 á Ísafirði
15:35 Haukur Sigurðsson: Fjársjóðurinn á Bökkunum
Fundarstjóri Sigríður Kristjánsdóttir.
Heitt á könnunni og öll velkomin!