Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Draugar Dýrafjarðar hátíðarsýning á Veturnóttum

22. október kl. 20:00-21:30

Upplýsingar um verð

4.900.- kr

Kómedíuleikhúsið býður til sérstakrar hátíðarsýningar á Veturnóttum á hinum magnaða og áhrifaríka leik Draugar Dýrafjarðar eftir Elfar Loga Hannesson.

Leikurinn var sýndur í sumar við miklar vinsældir og snýr nú aftur í eina sérstaka sýningu 22. október kl. 20:00.

Draugar Dýrafjarðar er krassandi leikstykki byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum úr Dýrafirði. Víða er skyggnst inn í handanheima og við sögu koma einhverjir mögnuðustu draugar fjarðarins, með Gunnhildi fremsta í flokki, sem gekk aftur lengst allra drauga Dýrafjarðar – eða nærri eina öld.

Leikurinn er sýndur á söguslóðum í leikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, en í þeim dal er draugagangur sagður hafa verið hvað mestur og magnaðastur í öllum firðinum.

Miðsölusími: 891 7025

Miðasala á netinu midix.is 

Hér er óvænt og óvætt verk á ferðinni sem mun án efa veita flestum viðeigandi hroll.

Höfundur / leikari: Elfar Logi Hannesson
Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Leikmynd / leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Tryggðu þér miða tímanlega og upplifðu Drauga Dýrafjarðar á sjálfum söguslóðunum