Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bókakynning: Áfall, hvað svo?

4. mars kl. 16:30-18:00

Upplýsingar um verð

Frítt

Dr. Sigrún Sigurðardóttir er prófessor við Háskólann á Akureyri og hjúkrunarfræðingur á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði. Hún segir frá nýútkominni bók sinni Áfall, hvað svo?

Sigrún er fædd og uppalin á Ísafirði, hún lauk námi frá MÍ 1988 og starfaði í lögreglunni á Ísafirði á árum áður, ásamt því að hafa starfað hér á Gamla sjúkrahúsinu sem gangastúlka og hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Áfall, hvað svo? fjallar um áföll, einkenni, afleiðingar og úrræði út frá fræðunum. Auk þess, segir Sigrún frá eigin reynslu í lífi og starfi sem margir Vestfirðingar geta tengt við.