Fara í efni

Barnamenningarhátíðin Púkinn: Eldblóm

11.-14. september

Eldblóm - dansverk fyrir flugelda og flóru byrjaði sem dansverk, varð flugeldasýning sem varð að blómainnsetningu sem núna er orðið að drykk og ilm.

Eldblóm - hvernig dans varð vöruhönnun er fyrirlestur/sýning þar sem Sigga Soffía leiðir áhorfendur inn í heim eldblóma.

Hún útskýrir tenginguna milli blóma og flugelda og opnar augu krakkanna fyrir því hvaða möguleika blóm eða jurtir í umhverfi þeirra kunna að hafa til framhaldslífs, eins og að vera nýtt í ilmi eða drykki.

Nánari upplýsingar eru á https://www.pukinnhatid.is/vidburdir/eldblom