Upplýsingar um verð
Líflambahappadrætti 800.- kr. miðinn.
Líflambahappadrætti – miðar eru komnir í sölu
Happadrætti verður í gangi á Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum sem verður haldið sunnudaginn 21. ágúst. Þar verða úrvals líflömb frá bændum í Tungusveit Ströndum í vinning, slíkur happafengur er ekki í boði á hverjum degi. Miðinn kostar 800 kr. Í vinning eru lömb frá eftirfarandi bændum:
# Hágæða hrútur frá Sigríði og Ragnari á Heydalsá
# Mikilfengleg gimbur frá Steinunni og Reyni í Miðdalsgröf
# Sérdeilis vel gerður hrútur frá Hafdísi og Matthísi í Húsavík
# Stórglæsileg gimbur frá Fjólu og Birni í Þorpum
# Ljómandi laglegur Strandahrútur frá Írisi og Unnsteini á Klúku
Loksins, loksins (vonumst) ætlum við halda þessa STÓRKOSTLEGU KEPPNI í hrútadómum, aftur eftir tveggja ára hlé. Það verður að venju bæði keppt í flokki vanra og óvanra hrútaþuklara. Vegleg verðlaun í boði í báðum flokkum.
KJÖTSÚPA í hádeginu og veglegt KAFFIHLAÐBORÐ yfir daginn.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Safnasjóður styrkja Sauðfjársetur á Ströndum á árinu 2022