Jóna Þorvaldsdóttir opnar ljósmyndasýningu í kirkju Samúels í Selárdal í Arnarfirði
Á sýningunni eru svarthvítar analog ljósmyndir teknar á innrauða filmu sem endurspegla andrúmsloft staðarins áður en Félag um listasafn Samúels hóf endurbætur á listaverkum og byggingum Samúels Jónssonar. Í þessum ljósmyndaverkum, sem eru lituð að hluta til með pastel vatnslitum og bleki, leitast Jóna við að miðla upplifun sinni af þessum merka stað og verkum. Jóna stundaði nám í ljósmyndun við European School of Photography í Póllandi og hefur síðan sérhæft sig í gömlum ljósmyndunaraðferðum. Hún hefur haldið fjölda sýninga, bæði hér á Íslandi og erlendis.
@jonaphotoart