Á ferð um Vestfirði síðustu helgina í ágúst? Staldraðu við á Patreksfirði og komdu á Blús milli fjalls og fjöru. Hátíðin fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar föstudaginn 27. og laugardaginn 28. ágúst 2027.
Fram undan eru tvö stútfull kvöld af einstakri tónlist, með blúsinn í hjartanu og vestfirska fegurð allt um kring. Njóttu dagsins á ferð um Vestfirði og endaðu kvöldið með lifandi tónlist í návígi við sviðið, með heimafólki og öðrum gestum.
Nánari upplýsingar um dagskrána birtast á Facebook-síðu hátíðarinnar.
Blús milli fjalls og fjöru – þar sem blúsinn lifir!