Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bryggjusauna

- Þjónusta

Bryggjan hefur alltaf verið mótsstaður fólks og ferða. Hér er unnið, beðið og horft út yfir hafið. Bryggjusauna stendur á þessum grunni og bætir við nýrri ástæðu til að staldra við – stað fyrir kyrrð þar sem oft er stöðug hreyfing.

Saunan stendur við Pollinn í hjarta Ísafjarðar. Húsið er hannað af finnska arkitektinum Tuomas Toivonen og sækir innblástur í eldri hús bæjarins. Úr saununni blasir við útsýni yfir Pollinn, fjöllin og bæinn. Bryggjusauna varð til út frá einfaldri hugmynd: að skapa stað þar sem bæjarbúar og gestir geta hægt á sér, notið augnabliksins og endurnýjað orkuna með samspili hita og kulda. Saunan rúmar allt að 10 gesti í senn og er búin hefðbundnum finnskum rafmagnsofni. Gestum stendur til boða búningsaðstaða og sturta. Við bókun færð þú aðgangskóða sem veitir aðgang að saununni á bókuðum tíma. Allt sem þú þarft að taka með þér eru sundföt og handklæði. Hægt að bóka stakt sæti í opnum tíma eða einkasaunu fyrir hópa sem vilja hafa saununa út af fyrir sig. 

Bryggjusauna

Bryggjan hefur alltaf verið mótsstaður fólks og ferða. Hér er unnið, beðið og horft út yfir hafið. Bryggjusauna stendur á þessum grunni og bætir við n