Tjaldsvæðið á Patreksfirði er staðsett við Félagsheimili Patreksfjarðar sem sést vel þegar komið er inn í bæinn. Góð aðstaða er í félagsheimilinu fyrir tjaldsvæðið, svo sem salerni, þvottavél og aðstaða til eldunar og þvotta. Rafmagn og seyrulosun er fyrir húsbíla, og ruslagámar eru á staðnum. Hægt er að fá leigðan sal og eldhúsaðstöðu fyrir hópa. Hægt er að fara í sturtu í sundlauginni á Patreksfirði, afsláttur er fyrir gesti tjaldsvæðisins.
Aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og húsbíla.
Verð 2023
Fullorðnir: 1.650 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.320 kr.
Börn að 18 ára: Frítt
3 nætur dvöl: 3.460 kr
4 nætur dvöl: 4.610 kr.
5 nætur dvöl: 5.760 kr.
6 nætur dvöl: 6.910 kr.
vikudvöl: 8.060 kr.
Rafmagn hvern sólarhring: 1.420 kr
Þvottavél og þurrkari: 1.540 kr