Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Concert with Gosi

June 19 at 20:00-21:30

Price description

3500 kr

Á tónleikunum má meðal annars heyra lög af annarri breiðskífu Gosa, Á floti, sem kom út á síðasta ári, auk þess sem ekki er ólíklegt að nokkur ný lög fái að slæðast með af væntanlegri plötu, Af fjöllum, sem nú er í vinnslu.

Saga Gosa hófst árið 2012 á námsárum Andra í Hollandi, þá sem eins manns rafpoppsveit. Síðan hefur Gosi vaxið, dafnað og á köflum talið allt að átta manns á sviði. Í Haukadal verður stemningin hins vegar nánari og persónulegri, þar sem Gosi mætir berskjaldaður með gítarinn, röddina og lögin í forgrunni.

Tónlist Gosa má lýsa sem indie poppi eða skrýtipoppi með fjölbreyttum áhrifum, þar sem þjóðsagnarverur, draumar, haf, fjöll og íslensk sérviska fléttast saman í einstakan tónheim.

Pæklaður í djúpinu, marineraður undir Gleiðarhjalla og ferskur eins og hafgola.

Komdu og upplifðu Gosa í návígi í einstöku umhverfi Kómedíuleikhússins í Haukadal.

Location

Kómedíuleikhúsið Haukadalur Dýrafjörður

Phone