Price description
35.000 kr.
Vekjandi listasmiðja, námskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, í samstarfi við Vekjandi listmeðferð.
Smiðjurnar fara fram á þriðjudögum kl. 16:30-17:30, 27. október-1. desember.
Í listasmiðjunni fá börn tækifæri til að kanna efni, áferðir og eigin sköpunarkraft í öruggu og hvetjandi umhverfi. Áherslan er á ferlið frekar en lokaafurðina. Kennarar eru Sandra Borg Bjarnadóttir, listmeðferðarfræðingur, og Þorgils Óttarr Erlingsson, myndlistarmaður.
Námskeiðsgjald: 35.000 kr.
Skráning fer fram í gegnum Abler og hægt er að nota frístundastyrk Ísafjarðarbæjar.