Price description
Tjaldanesdalur – Kirkjubólsdalur --- 2 skór ---
Laugardaginn 18. júlí
Fararstjórn: Þórir Örn Guðmundsson.
Mæting kl. 8.00 við Bónus á Ísafirði.
Komið saman hjá sundlauginni á Þingeyri. Ekið á nokkrum bílum að Tjaldanesdal þar sem gangan hefst. Gengið er fram allan dalinn og upp í skarðið milli Tjaldanesdals og Göngudals í Kirkjubólsdal. Þaðan niður Göngudal og eftir Tröllagötum í Kirkjubólsdal að Hofi og áfram að bílunum sem voru skildir eftir.
Vegna tilfæringa með bíla og fólk þarf fólk að skrá sig í ferðina fyrir 11. júlí á ferdafelag.isfirdinga@gmail.com
Ferðin er ókeypis en hverjum farþega er bent á að borga skutlara sínum 3.000 kr.
Vegalengd: um 11 km, göngutími: um það bil 5-6 klst., hækkun: um 500 m.