Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Skúli mennski og hljómsveit í Edinborgarhúsinu

November 14 at 20:30-22:30

Price description

4.500 kr. í forsölu

Skúli mennski og hljómsveit bjóða upp á ánægjulega og skemmtilega tónleikaupplifun í Edinborgarhúsinu að kvöldi laugardagsins 14. nóvember. 

Sveitin er í góðu spilastuði eftir síðustu Aldrei fór ég suður hátíð og heimsókn á Blús milli fjalls og fjöru á Patreksfirði í sumar. Blúsar í bland við partýlög og rokk og ról sem höfðar til allra aldurshópa. Missið ekki af strákunum áður en þeir meika það og spila bara í útlöndum.

Skúli Þórðarson leikur á taktgítar og syngur, Stefán Freyr Baldursson leikur á skrautgítar, Tumi Þór Jóhannsson á trommur og Eiríkur Örn Norðdahl á bassa. Engri loku er skotið fyrir komu leynigesta.

  • Laugardagskvöldið 14. nóvember kl. 20:30

  • Húsið opnar 20:00, barinn verður opinn

Miðaverð:
4.500 kr. í forsölu
5.900 kr. við hurð

Miðasala